Langalína 14 - óskráð rými - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Umrædd breyting sem spurt er um hefur í för með sér stækkun húss um 70 m2. Í skráningartöflu kemur fram að heildarflatarmál sambýlishússins Langalína 10, 12 og 14 er 5.089,8 m2. Hámarksflatarmál samkvæmt deiliskipulagi er 5.090,0 m2 og er heimild því fullnýtt fyrir.
Skipulagsstjóri tekur ekki afstöðu til atriða sem varða byggingarreglugerð og öryggismál.
Þar sem að grenndaráhrif stækkunarinnar eru lítil sem engin gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017. Afgreiðsla málsins nær líka til sambærilegra rýma sambýlishússins.