Vetrarbraut 21a, b, c. - óveruleg dsk br.
Málsnúmer 2311061
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
14. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lóðunum nr 21a og 21b við Vetrarbraut verði víxlað þannig að dæluhús verður nú á nr. 21a, áfram á 120m² lóð og tengistöð verður nú á nr. 21b, áfram á 84m² lóð. Skilmálar fyrir lóðirnar í kafla 4.14 í greinargerð eru óbreyttir.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðarbæjar og Veitna.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.