Beint í efni

Ráðning í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Málsnúmer 2312195

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

5. (2106). fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 1. febrúar sl. var samþykkt að ráða Lúðvík Örn Steinarsson, hæstaréttarlögmann í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs Garðabæjar.

Á fund bæjarráðs mættu Margrét Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn og Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri Garðabæjar. Gerð var grein fyrir ráðningarferlinu og farið yfir þau gögn sem liggja fyrir vegna ráðningar í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fyrir liggur bréf um rökstuðning vegna ráðningar í starfið sem sendur verður umsækjendum. Bréfið verður í framhaldinu sent bæjarfulltrúum.

Samskiptastjóri og sviðstjórar aðrir en bæjarritari véku af fundi undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (935). fundur

Almar Guðmundsson vék sæti við umræðu og afgreiðslu máls undir þessum dagskrárlið.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og fór þess á leit að bæjarstjóri gerði grein fyrir ástæðu þess að hann víkur sæti við afgreiðslu málsins.

Björg Fenger, formaður bæjarráðs gerði grein fyrir umsóknum um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og lagði fram tillögu um að ráða Lúðvík Örn Steinarsson í starf sviðsstjóra.

Lúðvík Örn hefur lokið kandídatsprófi frá Háskóla Íslands og málflutningsleyfi sem hæstaréttarlögmaður. Lúðvík Örn hefur rekið eigin lögmannsstofu frá árinu 1996. Hann hefur áratuga reynslu af stjórnarstörfum, hefur gegnt stjórnarformennsku og komið þar m.a. að endurskipulagningu stórra fyrirtækja. Hann hefur langa reynslu af samningagerð, lestri ársreikninga og framkvæmd greininga á rekstri. Sem lögmaður hefur Lúðvík Örn rekið stjórnsýslumál, hann hefur setið í stjórnum opinberra sjóða, gegnt stjórnarformennsku í stjórn Tryggingasjóðs og sinnt trúnaðarstörfum í nefndum fyrir sveitarfélag. Þá hefur Lúðvík Örn reynslu af stefnumótun og innleiðingu stefnu úr störfum sínum sem framkvæmdastjóri lögmannsstofu og sem stjórnarmaður.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Stjórnmálaþátttaka fólks á ekki að hafa áhrif á tækifæri þess til að sækja um störf hjá opinberum aðilum. Hins vegar hefði ég sem bæjarráðsfulltrúi í þessu máli óskað mjög eindregið eftir fjölskipaðri nefnd sem tæki lokaákvörðun um ráðningu, eða að bæjarráð hefði gert það, hefðu upplýsingar um mikil og þétt tengsl eins umsækjanda við Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ legið fyrir.“

Björg Fenger, tók til máls að nýju.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í ljósi þess að ætla má að óhlutdrægni við ráðningu sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu hafi ekki verið gætt getum við fulltrúar minnihlutans ekki fallist á þá tillögu að ráða þann umsækjanda til starfsins sem lögð er til af formanni bæjarráðs. Í stjórnsýslulögum annars kafla um sérstakt hæfi segir í lið 6 3. greinar um Vanhæfisástæður: „Ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu."
Teljum við að aðrar aðstæður vera fallnar til þess að draga megi óhlutdrægni formanns bæjarráðs í efa með réttu þar sem umsækjandi er pólitískur samstarfsfélagi.
Einstaklingurinn sem hér um ræðir hefur um langt skeið gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gerir enn með setu í nefndum, er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu og hefur haldið utan um prófkjör og kosningabaráttu flokksins. Þar að auki situr hann í skipulagsnefnd, einni veigamestu nefnd sveitarfélagsins, fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins þar sem formaður bæjarráðs fer einnig með formennsku.
Í dag stöndum við því frammi fyrir þeirri áleitnu spurningu hvort formaður bæjarráðs og formaður skipulagsnefndar, geti í reynd verið hlutlaus gagnvart kollega sínum og samstarfsfélaga svo það sé hafið yfir allan vafa. Um er að ræða ráðningu í eitt æðsta embætti sveitarfélagsins. Það er afar mikilvægt fyrir hvert sveitarfélag að starfsmenn stjórnsýslunnar séu hafnir yfir allan vafa og að um stjórnsýsluna ríki traust allra íbúa. Þar af leiðandi óskum við eftir skriflegum rökstuðningi vegna ráðningar í stöðu sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við ráðningarferli sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs hefur í einu og öllu verið unnið í samræmi við einróma samþykkt bæjarráðs frá 19. desember sl. og einróma samþykkt bæjarstjórnar þann 21. desember sl.
Skipuðum ráðgjafarhópi eru þökkuð góð og vönduð vinnubrögð við ráðningarferlið.
Í framhaldi af umræðu í bæjarráði 30. janúar sl., þar sem mannauðsstjóri Garðabæjar upplýsti bæjarráð um framgang ráðningarferlisins, er ferlinu lokið og tillaga formanns bæjarráðs liggur nú fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu eins og einróma ályktanir bæjarráðs og bæjarstjórnar sögðu til um.“

Björg Fenger, tók til máls að nýju.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

„Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum (SHJ,BF,HBE,GVG,SS,HRG) gegn fjórum atkvæðum (ÞÞ,HÞ,SDS,RNV) tillögu formanns bæjarráðs að ráða Lúðvík Örn Steinarsson í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (2105). fundur

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs. Fram kom að alls bárust 25 umsóknir um starfið en 2 umsækjendur hafa dregið umsókn sína til baka. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu.
Umsækjendur voru upplýstir um það með tölvupósti 29. desember sl. hvaða þrír einstaklingar yrðu formanni bæjarráðs til ráðgjafar við að leggja mat á umsóknir um starfið og ráðningarferlið almennt.
Sjö umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og þrír af þeim voru boðaðir í annað viðtal þar sem þeir kynntu verkefni sem fyrir þá var lagt og sátu fyrir svörum í framhaldi.

Ráðning í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs verður á dagskrá bæjarstjórnar fimmtudaginn 1. febrúar 2024.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri vék af fundi við umræðu undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

1. (934). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir umsóknum um starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs og lagði fram tillögu um að ráða Ágúst Þór Guðmundsson í starf sviðsstjóra.

„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarstjóra að ráða Ágúst Þór Guðmundsson í starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs. Ágúst Þór er með MBA frá Háskóla Íslands, M.Sc. í fjarskiptaverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet og B.Sc. í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.

Ágúst hefur umfangsmikla stjórnunarreynslu á sviði upplýsingatækni en undanfarin sjö ár hefur hann gegnt stjórnunarstöðum hjá Advania. Þar af undanfarin fjögur ár gegnt stöðu deildarstjóra fjármála og vinnumarkaðar þar sem hann hefur tekið virkan þátt í stafrænni umbreytingu ríkisins og borið ábyrgð á verkefnastjórnun þvert á Advania og samstarfsaðila ásamt högun upplýsingatæknikerfa. Áður gegndi hann stöðu forstöðumanns ferla og innri upplýsingakerfa í tvö ár og bar einnig ábyrgð á tæknilega hlutanum í stafrænni vegferð Advania og tók að auki þátt í innleiðingum á nýjum stöðluðum þjónustuferlum og þjónustutólum. Þar áður gegndi hann stöðu deildarstjóra skýjalausna. Ágúst starfaði hjá Símanum í 23 ár við hin ýmsu störf á sviði upplýsingatækni. Meðal annars sem deildarstjóri hugbúnaðarþróunar í sjö ár þar sem hann leiddi stærstu hugbúnaðardeild Símans. Áður gegndi hann m.a. stöðu hópstjóra samþættingarhóps og forritara hjá Símanum.

Bæjarráð Garðabæjar

05

2. (2103). fundur

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs. Fram kom að alls bárust 43 umsóknir um starfið en 3 umsækjendur hafa dregið umsókn sína til baka. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Ellefu umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og fjórir af þeim voru boðaðir í annað viðtal þar sem þeir kynntu verkefni sem fyrir þá var lagt og sátu fyrir svörum í framhaldi.

Ráðning í starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs verður á dagskrá bæjarstjórnar fimmtudaginn 18. janúar 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

18. (933). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um að Björg Fenger, formaður bæjarráðs komi í stað bæjarstjóra að undirbúningi, málsmeðferð og ákvörðun að tillögu fyrir bæjarstjórn um ráðningu í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.“ (Mál nr. 2312195)

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri vék af fundi við afgreiðslu um tillögu á ráðningarferli vegna starfs sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Bæjarráð Garðabæjar

07

48. (2101). fundur

Bæjarstjóri upplýsti að vegna tengsla við umsækjendur um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs hafi hann ákveðið að víkja við undirbúning og meðferð málsins.

Bæjarstjóri vék af fundi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að Björg Fenger, formaður bæjarráðs komi í stað bæjarstjóra að undirbúningi, málsmeðferð og ákvörðun að tillögu fyrir bæjarstjórn um ráðningu í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Bæjarráð samþykkir að sérstakur ráðgjafahópur sem í eiga sæti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri Garðabæjar, Margrét Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn, og Marínó Örn Tryggvason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Ráðgjafahópnum er ætlað að meta hæfi og hæfni umsækjenda á grundvelli þeirra sjónarmiða sem koma fram í auglýsingu um starfið og gera tillögu til formanns bæjarráðs um hverjir umsækjendur verða boðaðir í fyrsta viðtal. Viðtöl munu fara fram á starfstöð Vinnvinn.
Að loknum viðtölum verður tekin ákvörðun um að bjóða þeim sem teljast hæfastir til að gegna starfinu í annað viðtal. Að því loknu gerir formaður bæjarráðs tillögu til bæjarstjórnar um hvaða einstakling eigi að ráða til starfsins.

Ráðningarferli vegna starfs sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs verður með hefðbundnum hætti. Mannauðsstjóri og ráðgjafar fara yfir umsóknir og með tilliti til menntunar- og hæfniskrafna í auglýsingu og gera tillögu til bæjarstjóra um hverjir umsækjenda sem uppfylla fyrrgreind skilyrði verða boðaðir í viðtal.
Viðtöl munu fram á starfstöð Intellecta og þau annast bæjarstjóri, mannauðstjóri, sviðstjóri velferðarsviðs og starfsmaður Intelleccta. Að loknum viðtölum verður tekin ákvörðun um að bjóða þeim sem teljast hæfastir til að gegna starfinu í annað viðtal. Að því loknu gerir bæjarstjóri tillögu til bæjarstjórnar um hvaða einstakling eigi að ráða til starfsins.