Hnoðraholt norður - Breytingar á fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Sjá bókun vegna fundarliðar nr.3, Hnoðraholt norður-Uppfærsla deiliskipulags. Málsnr.2312130.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni kynningu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði og hjá deiliskipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
18. (933). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir heimild í skilmálum um kjallara fyrir bílgeymslur og fjölgun íbúða um eina við Vorbraut nr. 1, 11, 13, og 17 og um þrjár íbúðir við Vorbraut nr. 3. 7 og 9.“ (Mál nr. 2312167)
Bæjarráð Garðabæjar
05
48. (2101). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir heimild í skilmálum um kjallara fyrir bílgeymslur og fjölgun íbúða um eina við Vorbraut nr. 1, 11, 13, og 17 og um þrjár íbúðir við Vorbraut nr. 3. 7 og 9.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að heimilaðir verði kjallarar undir bílageymslur í fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar (Nr.1,3,5,7,9,11,13,15,17 og 19.) Byggingarreitur neðanjarðar, þ.e. fyrir bílageymslur nær 3 metra frá aðalbyggingarreit að Vorbraut. Þar sem að pláss skapast í bílageymslum fyrir bílastæði verður heimilað að fjölga íbúðum um eina að Vorbraut nr. 1, 11, 13 og 17 og um þrjár íbúðir að Vorbraut nr. 3 7 og 9. Á fjölbýlishúsalóðum fyrir F-4 skulu bílastæði umfram þau sem sýnd eru sem leiðbeinandi á uppdrætti vera innan byggingarreits kjallara eða jarðhæðar. Gert verður ráð fyrir almennum bílastæðum utan lóða í hluta ofanvatsrása(regnbeða) norðan Vorbrautar.
Skipulagsnefnd vísar breytingatillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan skal felld inn í uppfærð deiliskipulagsgögn að loknu ferli ef hún nær fram að ganga sem deiliskipulagsbreyting.