Beint í efni

Tillaga að samþykkt um hækkun álagningarhlutfalls útsvars vegna breytinga á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.

Málsnúmer 2312196

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (933). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir tillögu um hækkun álagningarhlutfalls útsvars vegna breytinga á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.

„Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15. desember 2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15. desember 2023, að samþykkja að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,71%. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að samhliða hækkun á álagningu útsvars sveitarfélaga um 0,23% komi til lækkunar á tekjuskatti ríkisins um sömu prósentu. Hækkun útsvars í Garðabæ um 0,23% felur því ekki í sér auknar álögur á íbúa.“

Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 30. desember nk.

Tillaga um hækkun útsvars um 0,23% er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

48. (2101). fundur

Í tilkynningunni kemur fram að ríki og sveitarfélög hafa undirritað samkomulag um breytingu á fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Samkomulagið felur í sér að hámarksútsvar sveitarfélaga hækkar um 0,23% og fer úr 14,74% í 14,97%. Samsvarandi lækkun verður á tekjuskattprósentu ríkisins.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn, með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15. desember 2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15. desember 2023, að samþykkja að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,71%. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að samhliða hækkun á álagningu útsvars sveitarfélaga um 0,23% komi til lækkunar á tekjuskatti ríkisins um sömu prósentu. Hækkun útsvars í Garðabæ um 0,23% felur því ekki í sér auknar álögur á íbúa.

Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 30. desember nk.