Beint í efni

Opnun tilboða í áhorfendabekki fyrir íþróttamiðstöð Álftaness.

Málsnúmer 2309301

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

5. (2106). fundur

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 30. janúar voru lögð fram eftirfarandi tilboð í 330 sæta áhorfendabekki fyrir Íþróttamiðstöðina á Álftanesi.

Leiktæki & Sport ehf. kr. 31.000.000
Altis ehf. 2a kr. 35.711.618
Altis ehf. 2b kr. 35.711.618
Altis ehf. frávikstilboð kr. 33.692.101
Sport-Tæki ehf. kr. 46.994.471
Sport-Tæki ehf. frávikstilboð kr. 44.989.726

Kostnaðaráætlun kr. 32.000.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá Altis ehf, merkt 2a. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2105). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð í 330 sæta áhorfendabekki fyrir Íþróttamiðstöðina á Álftanesi.

Leiktæki & Sport ehf. kr. 31.000.000
Altis ehf. kr. 35.711.618
Altis ehf. frávikstilboð kr. 33.692.101
Sport-Tæki ehf. kr. 46.994.471
Sport-Tæki ehf. frávikstilboð kr. 44.989.726

Kostnaðaráætlun kr. 32.000.000

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins meðan verið að skoða gögn málsins nánar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

48. (2101). fundur

Lagt fram minnisblað Strendings ehf. varðandi nýja áhorfendabekki í Íþróttmiðstöð Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa útboð vegna kaupa á nýjum áhorfendabekkjum í Íþróttamiðstöð Álftaness. Gera skal ráð fyrir að útboðið taki til svæðis A og að í boði verða tvær tillögur eins og fram kemur í minnisblaði.