Vorbraut 5,9,11,15 og 17 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa fjölbýlishúslóðanna Vorbraut 5,9,11,15 og 17.
Fyrirspurn vísað til tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem athugasemd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Samkvæmt framlagðri tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nær til fjölbýlishúslóða norðan Vorbrautar þá gerir tillagan ráð fyrir fjölgun íbúða um 3 íbúðir á lóðinni Vorbraut 9 og um 1 íbúð að Vorbraut 11 og Vorbraut 17. Ekki er gert ráð fyrir að fjölgun íbúða í húsum norðan Vorbrautar sem hafa 12 íbúðir nú þegar og er því ekki gert ráð fyrir fleiri íbúðum á lóðunum Vorbraut 5 og 15. Á fjölbýlishúsalóðum fyrir F-4 skulu bílastæði umfram þau sem sýnd eru sem leiðbeinandi á uppdrætti vera innan byggingarreits kjallara eða jarðhæðar.
Skipulagsnefnd hefur vísað framlagðri tillögu að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Vorbraut 5, 9,11,15 og 17 þar sem spurt er m.a. hvort heimilað verði að fjölga íbúðum um 3 í hverju húsi en um leið heimilað að gera bílakjallara.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir athugun á heildaráhrifun og fordæmisgildi fjölgunar íbúða.
Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til allra fjölbýlishúsalóða við Vorbraut.