Vorbraut 8-12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Sjá bókun vegna fundarliðar nr.3, Hnoðraholt norður-Uppfærsla deiliskipulags. Málsnr.2312130.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Vorbrautar 8-12. Lýtur fyrirspurn að því hvort heimilað verði að fjölga íbúðareiningum í fjölbýlishúsinu um tvær, úr tólf í fjórtán.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að fjölga íbúðum í fjögurra hæða fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar ef að byggingarmagn eykst ekki. Það kallar hinsvegar á breytingu á viðmiðunarfjölda íbúðareininga í Hnoðraholti norður sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna að tillögu að verkefnislýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar um tvær sbr.ofangreint.