Skerpluholt 3 - auka byggingarmagn - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um byggingarmagn, útbyggingar og byggingarreit.
Svar: Vísað er til umsagnar deiliskipulagshöfundar. Skipulagsnefnd fellst á að hámarksbyggingarmagni verði breytt í 240 fermetra til samræmis til viðmiðunarflatarmáls gatnagerðargjalda. Ekki er fallist á að stækka byggingarreit né breyta ákvæðum um útbyggingar.
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála sem athugasemd en uppfærslan hefur verið í auglýsingu og liggur fyrir þessum fundi.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu byggingar sem kallar á aukningu byggingarmagns í deiliskipulagi.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Fyrirspurn og umsögn vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.