Beint í efni

Skerpluholt 11 og 13 - dsk br. hækkun hæðarkóta

Málsnúmer 2407063

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðanna Skerpluholt 11 og 13 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillaga skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Bæjarráð Garðabæjar

03

27. (2128). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að meta tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísa henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Vorbraut 14 og 16, sem og Skerpluholti 8, 9 og 10.
Tillagan varðar breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti einbýlishúsanna að Skerpluholti 11 og 13 hækki um 50 cm. Hæð gólfkóta er skilgreind á útgefnum hæðarblöðum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að gólfkóti einbýlihúsanna að Skerpluholti 11 og 13 hækki um 50 cm. Hæð gólfkóta er skilgreind á útgefnum hæðablöðum.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Vorbraut 14 og 16 sem og Skerpluholti 8, 9 og 10.