Beint í efni

40. (2141). fundur

29.10.2024
Bæjarráð Garðabæjar

40. (2141). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.10.2024

Kl. 08:00 - 9:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2407142

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028)

Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2025.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025 og árin 2026-2028, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2026-2028) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 7. nóvember 2024.

Málsnúmer 2307150

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar - Viðauki nr. 2

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2024 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 2



Kjarasamningar



Gengið var frá kjarasamningum við Starfsmannafélag Garðabæjar og Verkalýðfélagið Hlíf í júní sl. með afturvirkum hækkunum frá apríl sl. Einnig var gerður kjarasamningur við félög tónlistarskólakennara í desember sl. eftir samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.

Kostnaðarhækkanir vegna þessara kjarasamninga nema á árinu 2024 kr. 171,6 m.kr.



Velferðasvið kr. 21.850.000

Fræðslumál kr. 82.700.000

Menningarmál kr. 1.500.000

Æskulýðs- og íþróttamál kr. 33.300.000

Skipulags- og byggingarmál kr. 3.750.000

Umhverfismál kr. 8.500.000

Sameiginlegur kostnaður kr. 13.100.000

Eignasjóður kr. 1.100.000

Þjónustumiðstöð kr. 3.800.000

Samveitur kr. 2.000.000

Samtals kr. 171.600.000



Leiðrétting á innri færslum



Æskulýðs og íþróttamál



Í fjárhagsáætlun 2024 er vanreiknuð húsnæðisnotkun íþróttafélaga upp á um 60,5 m.kr. vegna Miðgarðs. Bæta þarf við fjárhagsáætlun ársins eftirfarandi færslum vegna þessa.



Reiknuð afnot UMFÁ kr. 3.473.862 06825-9912

Reiknuð afnot Stjarnan kr. 57.034.253 06820-9912

Samtals kr. 60.508.115

Tekjur Íþróttamannvirkja kr.-60.508.115



Breytingin hefur engin áhrif á sjóðsstreymi



Fræðslumál



Innri leiga hefur verið uppfærð vegna Urriðabóls í Kauptúni samtals að fjárhæð kr. 136.439.374 sem bæta þarf við fjárhagsáætlun ársins.



Einingaleikskóli við Kauptún kr. 136.439.374 31167-0341

Eignasjóður innri leiga kr.-136.439.374 04169-4411



Breytingin hefur engin áhrif á sjóðsstreymi



Umferðar- og samgöngumál



Bæta þarf við fjármagni til snjómokstur og hálkuvarna vegna ársins 2024 um 60 millj. kr.

Snjómokstur kr. 60.000.000 10610-4521



Útgjaldaauki kr. 231.600.000



Fjármögnun viðauka



Varasjóður kr. - 171.600.000 31916-7179

Staðgreiðsla útsvars kr. -60.000.000 00010-0021

Samtals kr. -231.600.000

Málsnúmer 2407268

03

Skerpluholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á einni hæð með innbyggðum bílskúr, að Skerpluholti 3.

Málsnúmer 2408437

04

Vorbraut 29-39 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 29.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 31.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 33.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 35.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 37.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hnoðrabyggð ehf., kt. 590324-0860, leyfi til að byggja tveggja hæða raðhús að Vorbraut 39.

Málsnúmer 2410388

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í Brekkubyggð.

Umrætt mannvirki er samkvæmt aðalskipulagi Garðabæjar skilgreint á íbúðasvæði. Ekki er samþykkt deiliskipulag af svæðinu.

Bæjarráð leggst gegn því að leyfi verði veitt fyrir gistiheimili á umræddum stað.

Málsnúmer 2410431

06

Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi ársreikning Garðabæjar árið 2023, dags. 1. október 2024.

Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2410449

07

Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi ályktun um vörsluskyldu búfjár, dags. 23. október 2024.

Bréf Skógræktarfélags Íslands lagt fram, þar sem ríki og sveitarfélög eru hvött til að fylgja eftir vörsluskyldu búfjár.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.