Beint í efni

33. (2134). fundur

10.09.2024
Bæjarráð Garðabæjar

33. (2134). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

10.09.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2407142

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - forsendur og ferli.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025 (2025-2028). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2024 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 7. nóvember 2024. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 5. desember 2024.

Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2025.



Málsnúmer 2402030

02

Innleiðing ræstingar í stofnanir Garðabæjar.

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað varðandi innleiðingu ræstingar í stofnunum Garðabæjar, skv. verksamningi við Daga hf., grundvallað á útboðsgögnum dags. í maí 2024 og tilboði Daga hf dags. 24. júní 2024.

Málsnúmer 2409089

03

Bréf stjórnar SSH, dags. 4. september 2024, um samhæfða svæðisskipan í málefnum barna.

Erindi Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um samhæfða svæðisskipan í málefnum barna. Í erindinu kemur fram að samþykkt hafi verið að koma á fót sameiginlegu farsældarráði innan höfuðborgarsvæðisins og að framkvæmdastjóra samtakanna sé falið að gera viðaukasamning um Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins við mennta- og barnamálaráðuneytið um fjölgun ráðningar verkefnastjóra sem starfi að undirbúningi stofnunar farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og ráða verkefnastjóra á grundvelli hans.

Málsnúmer 2409101

04

Ársskýrsla umboðsmanns barna (2023).

Lögð fram tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem fram kemur að umboðsmaður barna hafi afhent forsætisráðuneytinu ársskýrslu embættisins fyrir árið 2023.

Málsnúmer 2205413

05

Viðauki við ráðningarsamning bæjarstjóra.

Viðauki við ráðningarsamning bæjarstjóra er samþykktur.

Viðaukinn verður lagður fram til staðfestingar í bæjarstjórn.