16. (2164). fundur
16. (2164). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
29.04.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2407142
01
Yfirlit yfir kaup á vörum og þjónustu frá stærstu birgjum árið 2024.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vöru- og þjónustukaupum af stærstu birgja á árinu 2024.
Málsnúmer 2502528
02
Kumlamýri 25 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Má Jóhannssyni, kt. 261187-2729, leyfi fyrir byggingu parhúss að Kumlamýri 25.
Málsnúmer 2502533
03
Kumlamýri 27 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Má Jóhannssyni, kt. 261187-2729, leyfi fyrir byggingu parhúss að Kumlamýri 27.
Málsnúmer 2503495
04
Úrskurður um stjórnsýslukæru Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 49/2025 um að veita leyfi til jarðvegsframkvæmda að Vorbraut 8-12.
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á samþykkt bæjarráðs frá 27. ágúst 2024 um að samþykkja að veita leyfi fyrir jarðvegsframkvæmdum vegna bílakjallara að Vorbraut 8-12. Í úrskurðarorði kemur fram að kærumálinu sé vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem kærendur hefðu ekki haft lögvarða hagsmuni í málinu.
Málsnúmer 2503430
05
Lausar kennslustofur - verðkönnun.
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir niðurstöðu verðkönnunar vegna leigu eða kaupa á færanlegum húseiningum fyrir lausar kennslustofur fyrir allt að 60 börn á leikskólastigi. Fyrir liggur tilboð Terra eininga ehf. að fjárhæð kr. 326.114.614, sem skiptist þannig að leiguverð í 24 mánuði eru kr. 114.917.400 og kaupréttur/kaupverð eftir 24 mánuði kr. 211.197.214.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að ganga til samninga við Terra einingar ehf. á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs, þar sem þess verður gætt að samningar verði á grundvelli útsendra forsendna í verðkönnuninni.
Málsnúmer 2504403
06
Kæra Verkvals ehf. til Kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Garðabæjar, ástandsmat fráveitu, hreinsun og myndun
Lögð fram kæra Verkvals ehf. vegna útboðs Garðabæjar, ástandsmat fráveitu, hreinsun og myndun, dags. 22. apríl 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað Juris lögmannsstofu varðandi niðurstöðu útboðsins og framkomna kæru.
Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2405295
07
Flataskóli - suðurálma.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað vegna stöðu suðurálmu Flataskóla, þar sem þrír byggingarhlutar hafa staðið lokaðir eftir að mygla og rakaskemmdir greindust.
Þegar valkostir sem fram koma í minnisblöðunum eru metnir samhliða framtíðarnotkun húsnæðisins er talið fýsilegast að fara í niðurrif á húsnæðinu.
Bæjarráð felur umhverfissviði að undirbúa niðurrif suðurálmu Flataskóla.
Málsnúmer 2504374
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Forsetinn - Lambamýri 5.
Í umsókninni kemur fram að sótt er um leyfi til reksturs Veitingaleyfis í flokki II - C veitingastofu og greiðasölu að Lambamýri 5.
Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, enda verði hagsmuna nágranna gætt m.t.t. opnunartíma.
Málsnúmer 2504237
09
Styrkumsókn Klúbbsins Geysis.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.
Málsnúmer 2504234
10
Aðalfundur Betri samgangna 2025.
Lagt fram aðalfundarboð Betri samgangna ohf. árið 2025, sem haldinn verður miðvikudaginn 30. apríl 2025 í fundarsal A á Iceland Parliament Hóteli.
Málsnúmer 2504224
11
Frumvarp til laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála, 271. mál.
Lagt fram.
Málsnúmer 2504310
12
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um leikskóla nr. 90/2008.
Lagt fram.
Málsnúmer 2504246
13
Frumvarp til laga - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum), 272. mál.
Lagt fram.