Beint í efni

Lausar kennslustofur - verðkönnun.

Málsnúmer 2503430

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

16. (2164). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir niðurstöðu verðkönnunar vegna leigu eða kaupa á færanlegum húseiningum fyrir lausar kennslustofur fyrir allt að 60 börn á leikskólastigi. Fyrir liggur tilboð Terra eininga ehf. að fjárhæð kr. 326.114.614, sem skiptist þannig að leiguverð í 24 mánuði eru kr. 114.917.400 og kaupréttur/kaupverð eftir 24 mánuði kr. 211.197.214.

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að ganga til samninga við Terra einingar ehf. á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs, þar sem þess verður gætt að samningar verði á grundvelli útsendra forsendna í verðkönnuninni.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (2160). fundur

Bæjarráð samþykkir að gerð verði verðkönnun vegna leigu eða kaupa á færanlegum húseiningum fyrir lausar kennslustofur fyrir allt að 60 börn á leikskólastigi.

Bæjarráð felur umhverfissviði framkvæmd verðkönnunarinnar.