Yfirferð tilboða í niðurrif suðurálmu og hluta miðálmu Flataskóla.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (2210). fundur
Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboð hljóðaði upp á 48 m.kr. og það hæsta 93 m.kr.
Við yfirferð tilboða kom í ljós að tilboð lægstbjóðanda uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsins og var því vísað frá frekari meðferð, í samræmi við útboðsskilmála og lög nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Næstlægsta tilboð barst frá H2Orku ehf. Fyrirtækið uppfyllir öll skilyrði útboðsins. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við H2Orku ehf. um framkvæmd verksins að fjárhæð 53.500.000 kr. með virðisaukaskatti.
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Bæjarráð Garðabæjar
02
14. (2209). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Flataskóli Garðabæ - Suðurálma og hluti miðálmu - Niðurrif 2026". Eftirfarandi tilboð bárust:
1. Urð og grjót ehf., kr. 48.000.000 (127,5%).
2. H2Orka ehf., kr. 53.500.000 (142,1%).
3. EJ Vélar ehf., kr. 80.500.000 (213,9%).
4. Berserkir ehf., kr. 81.900.000 (217,6%).
5. Atlas Verktakar ehf., kr. 93.000.000 (247,1%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 37.640.075. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Urð og grjót ehf., að fjárhæð kr. 48.000.000 (127,5% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. (2198). fundur
Bæjarráð felur umhverfissviði að óska aftur eftir tilboðum verktaka í að rífa hluta Flataskóla, sem er steinhús samtals um 1.170 m². Hlutinn sem á að rífa er að meginhluta byggður á 1958 - 1963, viðbygging við suðurálmu er nýrri byggð á árunum 1992 -1993. Verkefnið á að vinna nú á sumarmánuðum og vera lokið 15. ágúst.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (2171). fundur
Ekki bárust tilboð í verkið.
Bæjarráð felur umhverfissviði að leita samninga við verktaka um framkvæmd verksins.
Bæjarráð Garðabæjar
05
16. (2164). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað vegna stöðu suðurálmu Flataskóla, þar sem þrír byggingarhlutar hafa staðið lokaðir eftir að mygla og rakaskemmdir greindust.
Þegar valkostir sem fram koma í minnisblöðunum eru metnir samhliða framtíðarnotkun húsnæðisins er talið fýsilegast að fara í niðurrif á húsnæðinu.
Bæjarráð felur umhverfissviði að undirbúa niðurrif suðurálmu Flataskóla.