14. (2209). fundur
14. (2209). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.04.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2604306
01
Innritun í leikskóla Garðabæjar 2026.
Guðbjörg Linda Udengard, sviðsstjóri fræðslu- og frístundar, gerði grein fyrir stöðu innritunar barna í leikskóla fyrir haustið 2026.
Innritun hefur gengið vel og hefur börnum sem fædd eru í september 2025 verið boðin leikskólapláss. Vonir standa til að hægt verði að úthluta börnum sem fædd eru í október 2025 leikskólaplássum.
Málsnúmer 2405295
02
Opnun tilboða í verkið - Flataskóli suðurálma og hluti miðálmu, niðurrif.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Flataskóli Garðabæ - Suðurálma og hluti miðálmu - Niðurrif 2026". Eftirfarandi tilboð bárust:
1. Urð og grjót ehf., kr. 48.000.000 (127,5%).
2. H2Orka ehf., kr. 53.500.000 (142,1%).
3. EJ Vélar ehf., kr. 80.500.000 (213,9%).
4. Berserkir ehf., kr. 81.900.000 (217,6%).
5. Atlas Verktakar ehf., kr. 93.000.000 (247,1%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 37.640.075. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Urð og grjót ehf., að fjárhæð kr. 48.000.000 (127,5% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2604197
03
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Jazzþorpið á Garðatorgi.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Jazzþorpið á Garðatorgi dagana 30. apríl 2026 til 3.maí 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2604260
04
Styrkbeiðni minningar- og styrktarsjóðsins Arnarins, dags. 12.04.26.
Bæjarráð vísar erindinu til úthlutunar styrkja 2026.
Málsnúmer 2603521
05
Tillaga íbúa um grillaðstöðu í Vinagarði í Urriðaholti.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á umhverfissviði.