Úrskurður um stjórnsýslukæru Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 49/2025 um að veita leyfi til jarðvegsframkvæmda að Vorbraut 8-12.
Málsnúmer 2503495
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. (2164). fundur
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á samþykkt bæjarráðs frá 27. ágúst 2024 um að samþykkja að veita leyfi fyrir jarðvegsframkvæmdum vegna bílakjallara að Vorbraut 8-12. Í úrskurðarorði kemur fram að kærumálinu sé vísað frá úrskurðarnefndinni þar sem kærendur hefðu ekki haft lögvarða hagsmuni í málinu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (2161). fundur
Lögð fram kæra lóðarhafa Skerpluholts 1, 3 5 og 7 til Úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála vegna framkvæmda við lóðir að Vorbraut 8, 10, 12 og 14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.