39. (2140). fundur
39. (2140). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
22.10.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028)
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025. Umræðu um fjárhagsáætlun verður fram haldið á fundi bæjarráðs 29. október 2024. Fyrri umræða fjárhagsáætlunar verður á fundi bæjarstjórnar 7. nóvember 2024.
02
Skerpluholt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þorvaldi Guðjónssyni, kt. 031271-4449, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Skerpluholti 4.
03
Steinprýði 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kre ehf., kt. 640303-2120, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á einni hæð að Steinprýði 11.
04
Vorbraut 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu 12 íbúða, þriggja hæða fjölbýlishúss, að Vorbraut 9.
05
Vorbraut 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu 8 íbúða, þriggja hæða fjölbýlishúss, að Vorbraut 11.
06
Opnun tilboða - Kumlamýri yfirborðsfrágangur 1. áfangi.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir yfirboðsfrágang 1. áfanga - Álftanes-miðsvæði, svæði 4, Kumlamýri.
Grafa og grjót ehf. kr. 35.334.575, Mostak ehf. kr. 35.063.950, Stjörnugarðar ehf., kr. 35.428.300, Loftorka Reykjavík ehf., kr. 30.699.000 og Stéttarfélagið ehf., kr. 42.485.900.
Kostnaðaráætlun kr. 45.273.500.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins.
07
Bréf Umf. Stjörnunnar varðandi rekstur á íþróttahúsinu í Mýrinni, dags. 7. október 2024.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra og til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði.
08
Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2024 - bókun frá 586. fundi stjórnar SSH.
Lögð fram til kynningar Þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2024, frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í skipulagsnefnd.
09
Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um söluþóknun fasteignasala.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra vegna fyrirspurnar Garðabæjarlistans varðandi greiðslur til fasteignasala við sölu á lóðum/eignum bæjarins.