Rekstur íþróttahússins í Mýrinni.
Málsnúmer 2410268
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
33. fundur
Til umræðu er beiðni aðalstjórnar Stjörnunnar um að taka að sér rekstur á íþróttahúsinu Mýrinni.
Íþrótta- og tómstundaráð tekur jákvætt í að hefja samtal við aðalstjórn Stjörnunnar um þann möguleika að félagið taki að sér rekstur á íþróttahúsinu Mýrinni enda sé góð reynsla af slíku samstarfi félagsins og Garðabæjar með önnur íþróttamannvirki í bænum. Ráðið telur þó mikilvægt að málið verði unnið áfram í góðri samvinnu við skólasamfélagið sem notar mannvirkið til íþrótta- og sundkennslu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (2140). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra og til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði.