Beint í efni

Vorbraut 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2408351

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

39. (2140). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu 8 íbúða, þriggja hæða fjölbýlishúss, að Vorbraut 11.

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (2135). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. september 2024 fyrir fjölbýlishúsið Vorbraut 11, þar sem skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað uppbrot úthliða og gólfkóta 1.hæðar varðar og minnst er á í umsögn deiliskipulagshöfundar.
Að öðru leyti gerði nefndin ekki athugasemd við uppdrættina hvað deiliskipulag Hnoðraholts norður varðar. Umsögn deiliskipulagshöfundar lá fyrir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn fyrir fjölbýlishúsið að Vorbraut11 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað uppbrot úthliða og gólfkóta 1.hæðar varðar og minnst er á í umsögn deiliskipulagshöfundar.
Að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemd við uppdrættina hvað deiliskipulag Hnoðraholts norður varðar.