Hönnun - Útboð - Hofstaðaskóli Lóð - Endurnýjun
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2171). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Hofsstaðaskóli 1. áfangi":
1. Borgarvirki ehf., kr. 45.250.000.
2. Lóðarþjónustan ehf., kr. 50.021.000.
3. Sumargarðar ehf., kr. 49.702.000.
4. Fagurverk ehf., kr. 44.871.500.
5. Jóhann Helgi og Co ehf., kr. 40.405.000.
Kostnaðaráætlun var 53.588.000.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Jóhanns Helga og co ehf. að fjárhæð kr. 40.405.000. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.