Beint í efni

Hönnun - Útboð - Dælustöð Hólmatún Álftanes

Málsnúmer 2505251

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2171). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Dælu- og hreinsistöð við Hólmatún ásamt þrýstilögnum fráveitu:

1. Fagurverk ehf., kr. 97.882.900.
2. Urð og grjót ehf., kr. 81.932.250.
3. Gleipnir verktakar ehf., kr. 89.000.000.

Kostnaðaráætlun var kr. 92.694.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Urð og grjót ehf. að fjárhæð kr. 81.932.250. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kæru-frestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

19. (2167). fundur

Bæjarráð samþykkir að boðin verði út Dælustöð við Hólmatún, Álftanesi samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Bæjarráð felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins.