Beint í efni

Urriðaholt - Háholt

Málsnúmer 2506360

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

16. fundur

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi hjá EFLU kynnti fyrir hönd Urriðaholts ehf niðurstöðu í lokaðri samkeppni myndlistarmanna um listaverk á háholti Urriðaholts. Andri Gunnar Lyngberg arkitekt kynnti hugmyndir arkitektastofanna Trípoli og Krads um skipulag á háholti Urriðaholts sem urðu hlutskarpastar í lokaðri arkitektasamkeppni fyrr á vegur Urriðaholts ehf. Þær hugmyndir kalla á deiliskipulagsferli og í undirbúningi er umsókn um deiliskipulagsbreytingu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir niðurstöðum úr hönnunarsamkeppni vegna Háholts Urriðaholts sem Urriðaholt ehf. efndi til.
Í undirbúningi er hugmyndaleit á vegum Urriðaholts ehf og Oddfellowa um listaverk sem kennileiti á torginu í hjarta háholtsins.