Markarflöt 41 - Deiliskipulagsbreyting Flata
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Markarflatar 41, að lokinni grenndarkynningu, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (959). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til einbýlishúslóðarinnar Markarflatar 41. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 1,7 m til austurs á um 8 metra kafla vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 39, 43, 45 og 47.
Bæjarráð Garðabæjar
03
18. (2166). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til einbýlishúslóðarinnar Markarflatar 41. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 1,7 m til austurs á um 8 metra kafla vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskiplags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 39, 43, 45 og 47.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem nær til einbýlishúslóðarinnar Markarflatar 41. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 1,7 m til austurs á um 8 metra kafla vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskiplags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 39, 43, 45 og 47.