Arnarnesvegur - Deiliskipulag
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lögð fram skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Arnarnesvegar að lokinni kynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem borist hafa á kynningartíma.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
5. (957). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að lýsingu vinnu við gerð deiliskipulags fyrir tvo vegkafla Arnarnesvegar, annars vegar fyrir um 1,6 km kafla milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar, innan Garðabæjar og Kópavogs (A) og hins vegar fyrir um 1,1 km kafla, milli Fífuhvammsvegar að Rjúpnavegi innan Kópavogs (B). Deiliskipulagsáætlanirnar tvær munu ná yfir veghelgunarsvæðin, stíga og gatnamót að nálægum íbúðarsvæðum. Unnið er að veghönnun beggja vegkaflanna með breytingum sem eru til þess ætlaðar að auka umferðaröryggi og um leið eru hljóðvarnir, stígatengingar og innviðir almenningssamgangna yfirfarin. Bæði deiliskipulögin eru áfangar í þeirri vegferð að í gildi verði deiliskipulög fyrir Arnarnesveg innan Kópavogs og Garðabæjar. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún kynnt almenningi og umsagnaraðilum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
11. (2159). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að lýsingu vinnu við gerð deiliskipulags fyrir tvo vegkafla Arnarnesvegar, annars vegar fyrir um 1,6 km kafla milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar, innan Garðabæjar og Kópavogs (A) og hins vegar fyrir um 1,1 km kafla, milli Fífuhvammsvegar að Rjúpnavegi innan Kópavogs (B). Deiliskipulagsáætlanirnar tvær munu ná yfir veghelgunarsvæðin, stíga og gatnamót að nálægum íbúðarsvæðum. Unnið er að veghönnun beggja vegkaflanna með breytingum sem eru til þess ætlaðar að auka umferðaröryggi og um leið eru hljóðvarnir, stígatengingar og innviðir almenningssamgangna yfirfarin. Bæði deiliskipulögin eru áfangar í þeirri vegferð að í gildi verði deiliskipulög fyrir Arnarnesveg innan Kópavogs og Garðabæjar.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún kynnt almenningi og umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að lýsingu vinnu við gerð deiliskipulags fyrir tvo vegkafla Arnarnesvegar, annars vegar fyrir um 1,6 km kafla milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar, innan Garðabæjar og Kópavogs (A), og hins vegar fyrir um 1,1 km kafla, milli Fífuhvammsvegar að Rjúpnavegi innan Kópavogs (B). Deiliskipulagsáætlanirnar tvær munu ná yfir veghelgunarsvæðin, stíga og gatnamót að nálægum íbúðarsvæðum. Unnið er að veghönnun beggja vegkaflanna með breytingum sem eru til þess ætlaðar að auka umferðaröryggi og um leið eru hljóðvarnir, stígatengingar og innviðir almenningssamgangna yfirfarin. Bæði deiliskipulögin eru áfangar í þeirri vegferð að í gildi verði deiliskipulög fyrir Arnarnesveg innan Kópavogs og Garðabæjar.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún kynnt almenningi og umsagnaraðilum.