Hagaflöt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
2. fundur
Lögð fram tillaga að umsókn um byggingarleyfi sem vísað var til kynningar hjá nágrönnum ásamt þeim athugasemdum sem gerðar voru. Sú breyting hefur verið gerð á tillögunni að viðbygging austan við bílageymslu er 50 cm frá lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd leggur til að breyting verði gerð á áður grenndarkynntri tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur verði 50 cm frá lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri leiði málið til lykta samkvæmt þeim heimildum sem embættið hefur um meðferð skipulagstillagna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa við grenndarkynningu á útfærslu tillögunnar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
9. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri vísar uppdrætti til kynningar hjá þeim sem athugasemd gerðu við tillögu að breytingu deiliskipulags árið 2023.