Hönnun - Útboð - Arnarnes Endurnýjun fráveitulagna
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
13. fundur
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á fráveitulögn í Arnarnesi ásamt hönnunargögnum.
Vísað til nánari skoðunar hjá umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. (2221). fundur
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarnes - Jarðvinna, lagnir og frágangur":
1. Fagurverk kr. 29.610.000 (61%).
2. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 32.159.240 (66%).
3. Stjörnugarðar ehf., kr. 44.652.000 (92%).
4. Berg verktakar, kr. 51.659.000 (106%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 48.714.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fagurverk, að fjárhæð kr. 29.610.000 (61% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024 varðandi framkvæmdaleyfi fyrir endurbætur á fráveitulögn í Arnarnesi ásamt framkvæmdastíg neðan við íbúðarhús í Haukanesi. Skipulagsnefnd vísaði umsókn til grenndarkynningar í samræmi við 5.mgr. 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal framkvæmdina eigendum húsa við Haukanes 16, 18, 20,22, 24, 26 og 28 sem og Mávanes 23 og 25.
Bæjarráð Garðabæjar
04
42. (2143). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember varðandi framkvæmdaleyfi fyrir endurbætur á fráveitulögn í Arnarnesi ásamt framkvæmdastíg neðan við íbúðarhús í Haukanesi.
Skipulagsnefnd vísaði umsókn til grenndarkynningar í samræmi við 5.mgr. 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal framkvæmdina eigendum húsa við Haukanes 16, 18, 20,22, 24, 26 og 28 sem og Mávanes 23 og 25.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
14. fundur
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir endurbætur á fráveitulögn í Arnarnesi ásamt framkvæmdastíg neðan við íbúðarhús í Haukanesi.
Skipulagsnefnd vísar umsókn til grenndarkynningar í samræmi við 5.mgr. 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal framkvæmdina eigendum húsa við Haukanes 16, 18, 20,22, 24, 26 og 28 sem og Mávanes 23 og 25.