Skerpluholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu, engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnorðaholts norður, sem nær til lóðarinnar Skerpluholt 2. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir kjallara, þar sem að hæðarlega lóðar gefur tilefni til. Flatarmál kjallara má vera allt að 100 m2 og nýtingarhlutfall á lóð verður að hámarki 0,45 en byggður flötur á lóð 30%.
Einnig er gert ráð fyrir að svalir geti náð allt að 1 m út fyrir byggingarreit. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grnndarkynningar í samræmi við 44. gr sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Skerpluholts 1, 3, 4 og 5.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
3. fundur
Lögð fram tillaga að útfærslu einbýlishúss að Skerpluholti 2 sem fylgir fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa. Tillagan gerir ráð fyrir kjallara undir suðurhluta hússins.
Svar: Skipulagsnefnd telur að útfærslan komi til greina þar sem að sýnt hefur verið fram á að hæðarlega lóðarinnar og aðliggjandi lands gefi tilefni til þess að útfæra bygginguna með þessum hætti. Útfærslan kallar á umsókn um breytingu deiliskipulags.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu einbýlishúss.
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.