47. fundur
47. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.02.2026
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2509268
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025
Hulda Hauksdóttir kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var frá 17. nóvember til 13. janúar sl. Niðurstöður eru mjög jákvæðar og sýna betri einkunn í öllum þáttum könnunarinnar. Hulda fór einnig yfir viðbótar spurningar í könnuninni sem sneru að þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi.
Málsnúmer 2601018
02
Afreksstyrkir 2026 - fyrri úthlutun
Yfirlit yfir umsóknir til fyrri úthlutunar afreksstyrkja ÍTG 2026.
ÍTG Samþykkir að veita eftirtöldum aðilum afreksstyrk við fyrri úthlutun 2026, alls kr. 2000.000,-
GKG kr. 300.000 fyrir Aron Snæ Júlíusson
Klifurfélagi Rvk kr. 300.000 fyrir Gabríelu Einarsdóttur
GKG kr. 300.000 fyrir Gunnlaugu Árna Sveinsson
Skíðadeild Fram kr. 300.000 fyrir Jón Erik Sigurðsson
ÍFR kr. 250.000 fyrir Hákon Atla Bjarkason
Bogfimifélaginu Boginn kr. 250.000 fyrir Þórdísi Unni Bjarkadóttur
GKG kr. 100.000 fyrir Gunnar Þór Heimisson
FH kr. 100.000 fyrir Bjarki Fannar Benediktsson
Dansfélagi Rvk. kr. 100.000 fyrir Freyju Örk Sigurðardóttur
Styrkur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar var samþykktur kr. 300.000,- á hvort þeirra.
Málsnúmer 2602146
03
Nýting hvatapeninga 2025
Kynnt er skýrsla um helstu lykiltölur um nýtingu og hlutfall nýtingar hvatapeninga eftir árgöngum 5 til 18 ára í Garðabæ 2025.
Kynnt var skýrsla um helstu lykiltölur um nýtingu og hlutfall nýtingar hvatapeninga eftir árgöngum 5 til 18 ára í Garðabæ 2025.
3966 börn áttu rétt á hvatapeningum. 3073 börn nýttu rétt sinn til hvatapeninga eða 77,5%. Piltar nýttu 78% og stúlkur 72% af rétti sínum til hvatapeninga á árinu.
178.436.046 kr. voru greiddar í hvatapeninga árið 2025 samanborið við 163.310.454 kr. árið áður (9,3% hækkun). Greiðslur til félaga innan Garðabæjar voru tæpar 129 mkr. eða 72,4%.
Í skýrslunni er tafla yfir nýtingu einstakra árgnga síðustu 12 ár.
Þar er einnig yfirlit yfir í hvað börnin nýttu sína hvatapeninga á síðasta ári, skipt eftir kynjum og aldri.
Málsnúmer 2602145
04
Aðsókn í sundlaugar 2025
Til upplýsingar er hér samantekt á aðsóknartölum í sundlaugarnar í Garðabæ, í Ásgarði og á Álftanesi, allt árið 2025. Aðsókn jókst milli ára um rúmlega 1% í heildina.
Heildar aðsókn var 271.962 heimsóknir í báðar laugar samtals. 168.596 sinnum í Ásgarðslaug og 103.366 sinnum í Álftaneslaug.
Þar af komu 67 ára og eldri 39.701 sinni í Ásgarðslaug og 7.158 sinnum í Álftaneslaug.
Nákvæm talning er ekki á fjölda heimsókna barna yngri en 18 ára sem fá frítt í sund.
Auk þessa er kennsla í sundlaugunum.
Farið var yfir samantekt á aðsóknartölum í sundlaugarnar í Garðabæ, í Ásgarði og á Álftanesi, allt árið 2025. Aðsókn jókst milli ára um rúmlega 1% í heildina.
Heildar aðsókn var 271.962 heimsóknir í báðar laugar samtals. 168.596 sinnum í Ásgarðslaug og 103.366 sinnum í Álftaneslaug.
Þar af komu 67 ára og eldri 39.701 sinni í Ásgarðslaug og 7.158 sinnum í Álftaneslaug.
Nákvæm talning er ekki á fjölda heimsókna barna yngri en 18 ára sem fá frítt í sund.
Auk þessa er kennsla í sundlaugunum.
Málsnúmer 2511167
05
Þarfagreining um íþróttasvæði í og við Miðgarð
Arnar Hólm þurfti að víkja af fundi þegar hér var komið sögu.
Farið yfir framvindu á greinargerð um þarfagreiningu og hugmyndavinnu vegna áframhaldandi uppbyggingar í Miðgarði.
Farið var yfir framvindu á greinargerð um þarfagreiningu og hugmyndavinnu vegna áframhaldandi uppbyggingar í Miðgarði og á íþróttasvæðum þar í kring. Meðal annars var farið yfir þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Norðurlöndunum og samráð við félög og aðra hagaðila. Áframhaldandi greining á þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja verður framhaldið ásamt því að fundað verður með félögum og öðrum hagaðilum á svæðinu. Þegar greiningarvinnu er lokið verður lögð fram tillaga og greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs til bæjarráðs.
Málsnúmer 2601018
06
Afreksstyrkir 2026 - fyrri úthlutun
Umsókn um afresstyrk fyrir Jón Erik Sigurðsson skíðamann sem nú er að keppa á vetrarólympíuleikunum á Ítalíu.
ÍTG samþykkir að veita Skíðadeild Fram kr. 300.000 fyrir Jón Erik Sigurðsson skíðamann sem nú er að keppa á vetrarólympíuleikunum á Ítalíu.
Málsnúmer 2601549
07
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til GKG vegna Gunnlaugs Árna Sveinssonar.
ÍTG samþykkir að veita GKG kr. 300.000,- vegna Gunnlaugs Árna Sveinssonar golfara vegna afreksáætlunar hans.
Málsnúmer 2601561
08
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til GKG vegna Arons Snæs Júlíussonar
ÍTG samþykkir að veita GKG kr. 300.000,- vegna Arons Snæs Júlíussonar golfara vegna afreksáætlunar hans.
Málsnúmer 2601562
09
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til GKG vegna Gunnars Þórs Heimissonar
ÍTG samþykkir að veita GKG kr. 100.000,- vegna Gunnars Þórs Heimissonar golfara vegna afreksáætlunar hans.
Málsnúmer 2601559
10
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til Klifurfélags Reykjavíkur vegna Gabríelu Einarsdóttur
ÍTG samþykkir að veita Klifurfélagi Reykjavíkur kr. 300.000,- vegna Gabríelu Einarsdóttur klifuríþróttakonu vegna afreksáætlunar hennar.
Málsnúmer 2601533
11
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til Bogans Bogfimifélags Kópavogs vegna Þórdísar Unnar Bjarkadóttur.
ÍTG samþykkir að veita Boganum Bogfimifélagi Kópavogs kr. 250.000 vegna Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna afreksáætlunar hennar.
Málsnúmer 2601557
12
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til ÍFR vegna Hákons Bjarkasonar
ÍTG samþykkir að veita Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík kr. 250.000 vegna Hákons Bjarkasonar og afreksáætlunar hans.
Málsnúmer 2601554
13
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til Frjálsíþróttadeildar FH vegna Bjarka Fannars Benediktssonar.
ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk kr. 100.000,- til Frjálsíþróttadeildar FH vegna Bjarka Fannars Benediktssonar og afreksáætlunar hans.
Málsnúmer 2601553
14
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Afreksstyrkur til Dansíþróttafélags Reykjavíkur, DR, vegna Freyju Arkar Sigurðardóttur.
ÍTG samþykkir að veita afreksstyrk kr. 100.000,- til Dansíþróttafélags Reykjavíkur, DR, vegna Freyju Arkar Sigurðardóttur og afreksáætlunar hennar.
Málsnúmer 2601463
15
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 50.000,- til Sólons Kára Sölvasonar vegna landsliðsverkefnis með U19 og Elite í hjólreiðum á Spáni 27.jan til 3. febrúar 2026.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 50.000,- til Sólons Kára Sölvasonar vegna landsliðsverkefnis með U19 og Elite í hjólreiðum á Spáni 27.jan til 3. febrúar 2026.
Málsnúmer 2602020
16
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 50.000,- til Sigrúnar Sólar Brjánsdóttur vegna NM U16 í Istanbul 10.08.2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 50.000,- til Sigrúnar Sólar Brjánsdóttur vegna NM U16 í Istanbul 10.08.2025.