Þarfagreining um íþróttasvæði í og við Miðgarð
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
48. fundur
Framhald umræðu
Formaður fór yfir framvindu þarfagreiningar og hugmyndavinnu vegna áframhaldandi uppbyggingar íþróttasvæðisins við Miðgarð. Í kynningu var meðal annars farið yfir þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, sem og þarfir íþróttafélaga, íbúa og skóla í bænum.
Íþrótta- og tómstundaráð telur mikilvægt að uppbygging svæðisins taki mið af bæði núverandi þörfum og framtíðarsýn um öflugt íþrótta- og tómstundastarf í Garðabæ.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
47. fundur
Farið yfir framvindu á greinargerð um þarfagreiningu og hugmyndavinnu vegna áframhaldandi uppbyggingar í Miðgarði.
Farið var yfir framvindu á greinargerð um þarfagreiningu og hugmyndavinnu vegna áframhaldandi uppbyggingar í Miðgarði og á íþróttasvæðum þar í kring. Meðal annars var farið yfir þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Norðurlöndunum og samráð við félög og aðra hagaðila. Áframhaldandi greining á þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja verður framhaldið ásamt því að fundað verður með félögum og öðrum hagaðilum á svæðinu. Þegar greiningarvinnu er lokið verður lögð fram tillaga og greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs til bæjarráðs.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
45. fundur
Framhald umræðu um þarfagreiningu íþróttasvæða við Miðgarð
Fram fóru umræður um málið og rætt um frekari gagnaöflun. Í samráði við formann bæjarráðs hefur verið ákveðið að fresta skilum á greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs fram yfir áramót, en unnið er að frekari gagna- og upplýsingaöflun.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
44. fundur
Þarfir íþróttafélaga í Garðabæ fyrir aðstöðu í og við Miðgarð.
Formanni ÍTG hefur verið falið ásamt fræðslu- og frístundasviði bæjarins að gera þarfagreiningu fyrir íþróttamannvirki á Miðgarðssvæðinu út frá samþykktu deiliskipulagi svæðisins
Deiliskipulag gerir ráð fyrir 41.000 fermetra reit fyrir íþróttamannvirki, þ.e. íþróttahús og stúkubyggingar.
Markmið er að skilgreina þörf íþrótta-, tómstunda- og skólastarfs og umfang íþróttahúss og tengdra mannvirkja miðað við framtíðarþróun svæðisins.
Góðar umræður urðu um málið.