45. fundur
45. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
10.12.2025
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2511152
01
Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar jan 26
ÍTG velur alls 10 íþróttamenn úr tilnefningum um íþróttafólk ársins í Garðabæ árið 2025.
Útnefning fer fram sunnudaginn 11. janúar nk.
ÍTG hefur valið 12 einstaklinga úr 19 tilnefningum sem bárust frá félögum og einstaklingum um íþróttafólk ársins í Garðabæ árið 2025.
Þau sem verða í kjöri eru:
Aron Friðrik Georgsson kraftlyftingamaður úr Stjörnunni.
Gunnlaugur Árni Sveinsson golfari úr GKG.
Haukur Helgi Pálsson Briem körfuboltamaður úr UMFÁ.
Jón Þór Sigurðsson skotíþróttamaður úr Skotíþróttafélagi Kópavogs.
Nikita Basev Latíndansari úr DÍH.
Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður úr Stjörnunni.
Hanna Rún Basev Latíndansari úr DÍH.
Hulda Clara Gestsdóttir golfari úr GKG.
Ingeborg Eide Garðarsdóttir frjálsíþróttum fatlaðra úr Ármanni.
Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttum úr FH.
Lucie Martinsdóttir Stefaniková kraftlyftingakona úr Stjörnunni.
Þórdís Unnur Bjarkadóttir bogfimi úr Boganum.
Kosning á meðal almennings fari fram dagana 18. desember til og með 4.janúar 2026, íþrótta- og tómstundaráð tilkynnir útnefningu íþróttafólks Garðabæjar á Íþróttahátíð Garðabæjar 11. janúar 2026.
Málsnúmer 2512145
02
Reglur hvatapeninga 2026
Upphæð hvatapeninga ársins 2026 hefur verið ákveðin og hækkar úr 60.000kr í 67.000,- kr. á ári. áfram verður hægt að sækja um viðbótar hvatapeninga kr 15.000,- ef tekjur heimilisins eru undir 923.000,- kr./mán eða 1.131.000,- kr hjá einhleypum foreldrum.
Reglurnar eru hér lagðar fram í heild sinni til umræðu.
Upphæð hvatapeninga ársins 2026 hefur verið ákveðin og hækkar úr 60.000kr í 67.000,- kr. á ári. áfram verður hægt að sækja um viðbótar hvatapeninga kr. 15.000,- ef tekjur heimilisins eru undir 923.000,- kr./mán eða 1.131.000,- kr. hjá einhleypum foreldrum. Börn og ungmenni á tekjulágum heimilum geta þannig sótt um 82.000 kr. hvatapeninga.
Reglurnar voru lagðar fram í heild sinni til umræðu.
Engar breytingar aðrar en á peningaupphæðinni eru gerðar á reglum hvatapeninga að svo stöddu.
Málsnúmer 2510389
03
Golfleikjanámskeið GKG - styrkbeiðni
Ósk frá GKG um styrk vegna Golfleikjanámskeiða sumarið 2026.
ÍTG samþykkir að vísa þessari ósk til viðræðna við félagið um rekstrarstyrki næsta árs og framkvæmdar sumarnámskeiða 2026.
Málsnúmer 2511167
04
Þarfagreining um íþróttasvæði í og við Miðgarð
Framhald umræðu um þarfagreiningu íþróttasvæða við Miðgarð
Fram fóru umræður um málið og rætt um frekari gagnaöflun. Í samráði við formann bæjarráðs hefur verið ákveðið að fresta skilum á greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs fram yfir áramót, en unnið er að frekari gagna- og upplýsingaöflun.
Málsnúmer 2511052
05
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 fyrir Þóri Bjarna Traustason vegna UCI World Championship in Enduro (HM í Enduro) á vegum HRÍ Landslið Íslands í Enduro fjallahjólreiðum , september 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 fyrir Þóri Bjarna Traustason vegna UCI World Championship in Enduro (HM í Enduro) á vegum HRÍ Landslið Íslands í Enduro fjallahjólreiðum , september 2025.
Málsnúmer 2511262
06
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Ástu Kristinsdóttur vegna NM í hópfimleikum í Finnlandi 6.11.2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Ástu Kristinsdóttur vegna NM í hópfimleikum í Finnlandi 6.11.2025.
Málsnúmer 2512108
07
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk kr. 20.000 til Brynjars Smára Elvarssonar vegna V-EM í kraftlyftingum í Finnlandi 10. september 2025
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Brynjars Smára Elvarssonar vegna V-EM í kraftlyftingum í Finnlandi 10. september 2025.
Málsnúmer 2512057
08
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur vegna Silver League á vegum BLÍ í Lúxemburg 12.-15. júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur vegna Silver League á vegum BLÍ í Lúxemburg 12.-15. júní 2025.
Málsnúmer 2512056
09
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur vegna Silver League á vegum BLÍ í Sviss 5.-8. júní 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur vegna Silver League á vegum BLÍ í Sviss 5.-8. júní 2025.
Málsnúmer 2512034
10
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Mateusz Marek Markowski vegna NM í hópfimleikum 6.-9.nóv 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Mateusz Marek Markowski vegna NM í hópfimleikum 6.-9.nóv 2025.
Málsnúmer 2511369
11
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000 til Aðalheiður G. Kolbeinsdóttir vegna NM í hópfimleikum 6.-9.nóv 2025.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Aðalheiður G. Kolbeinsdóttir vegna NM í hópfimleikum 6.-9.nóv 2025.