Beint í efni

Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar jan 26

Málsnúmer 2511152

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

46. fundur

Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin í Ásgarði sunnudaginn 11.janúar kl. 13:00.
Viðurkeningar verða veittar til íþróttafólks ársins, karli og konu, þátttakendum með A-landsliðum eða Ungmenna landsliðum, árangur á erlendum vettvangi. Lið ársins í hópíþróttum valið og þjálfarar ársins. Einnig heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum.
Öllum fyrri íþróttamönnum ársins frá upphafi hefur verið boðið að mæta í tilefni 50 ára afmælisárs bæjarins.

Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin í Ásgarði sunnudaginn 11.janúar kl. 13:00.
Viðurkeningar verða veittar til íþróttafólks ársins, karli og konu, þátttakendum með A-landsliðum eða Ungmenna landsliðum, árangur á erlendum vettvangi. Lið ársins í hópíþróttum valið og þjálfarar ársins. Einnig heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum.
Öllum fyrri íþróttamönnum ársins frá upphafi hefur verið boðið að mæta í tilefni 50 ára afmælisárs bæjarins.
Íþróttafólk ársins 2025 eru Jón Þór Sigurðsson skotíþróttamaður og Lucie Martinsdóttir Stefaniková kraftlyftingakona.
Lið ársins 2025 er meistaraflokkur Stjörnunnar í körfubolta karla.
Þjálfarar ársins 2025 er þjálfarateymi Stjörnunnar í hópfimleikum; Andrea Sif Pétursdóttir, Jimmy Erik Ekstedt, Kristinn Már Hjaltason, Tanja Kristín Leifsdóttir og Una Brá Jónsdóttir.
Heiðursviðurkenning fyrir framlag til félagsmála í Garðabæ fá Agnar Jón Ágústsson hlaupahópi Stjörnunnar, Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz skokkhópi Álftaness, Helgi Hrannarr Jónsson knattspyrnudeild Stjörnunnar og Sigrún Þorsteinsdóttir sunddeild Stjörnunnar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

45. fundur

ÍTG velur alls 10 íþróttamenn úr tilnefningum um íþróttafólk ársins í Garðabæ árið 2025.
Útnefning fer fram sunnudaginn 11. janúar nk.

ÍTG hefur valið 12 einstaklinga úr 19 tilnefningum sem bárust frá félögum og einstaklingum um íþróttafólk ársins í Garðabæ árið 2025.
Þau sem verða í kjöri eru:
Aron Friðrik Georgsson kraftlyftingamaður úr Stjörnunni.
Gunnlaugur Árni Sveinsson golfari úr GKG.
Haukur Helgi Pálsson Briem körfuboltamaður úr UMFÁ.
Jón Þór Sigurðsson skotíþróttamaður úr Skotíþróttafélagi Kópavogs.
Nikita Basev Latíndansari úr DÍH.
Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður úr Stjörnunni.
Hanna Rún Basev Latíndansari úr DÍH.
Hulda Clara Gestsdóttir golfari úr GKG.
Ingeborg Eide Garðarsdóttir frjálsíþróttum fatlaðra úr Ármanni.
Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttum úr FH.
Lucie Martinsdóttir Stefaniková kraftlyftingakona úr Stjörnunni.
Þórdís Unnur Bjarkadóttir bogfimi úr Boganum.
Kosning á meðal almennings fari fram dagana 18. desember til og með 4.janúar 2026, íþrótta- og tómstundaráð tilkynnir útnefningu íþróttafólks Garðabæjar á Íþróttahátíð Garðabæjar 11. janúar 2026.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

44. fundur

Fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar 11.janúar 2026 vegna kjörs íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2025.

ÍTG samþykkti að halda íþróttahátíð Garðabæjar 11.janúar 2026 vegna kjörs á íþróttafólki Garðabæjar 2025. Í tilefni afmælisárs Garðabæjar árið 2026 verður öllu íþróttafólki sem hlotið hefur titilinn íþróttamaður Garðabæjar frá upphafi, boðið til hátíðarinnar.
Auglýst verður eftir tilnefningum frá almenningi og íþróttafélögum til 3. desember.
ÍTG velur síðan úr tilnefningum hvaða einstaklingar taka þátt í kjörinu.