Beint í efni

Leiðrétting tilboðstalna í verkið - Stækkun Tónlistarskóla.

Málsnúmer 2601404

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

9. (2204). fundur

Við yfirferð tilboða af hálfu VSB verkfræðistofu komu í ljós reiknivillur nokkurra tilboðsgjafa. Gerðar voru viðeigandi leiðréttingar á útreikningi tilboða sem innihéldu reiknivillur og nýr niðurstöðulisti sendur bjóðendum.

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Stækkun Tónlistarskóla":

1. Aðalvík ehf., kr. 468.038.706, 89,0%.

2. Alefli ehf., kr. 523.954.439, 99,6%.

3. All Verk ehf., kr 477.224.364, 90,8%.

4. Atlas verktakar ehf., kr. 554.077.873, 105,4%.

5. E. Sigurðsson ehf., 492.212.181, 93,6%.

6. Eykt hf., kr. 561.470.947, 106,8%.

7. Húsameistari ehf., 608.873.560, 115,8%.

8. Íslenskir aðalverktakar hf., 622.837.123, 118,5%.

9. K16 ehf., kr. 529.803.345, 100,8%.

10. Landris ehf., kr. 539.499.153, 102,6%.

11. PK Verk ehf., kr. 593.844.284, 112,9%.

12. Sjammi ehf., kr. 499.997.404, 95,1%.

13. Stéttafélagið ehf., kr. 561.930.984, 106,9%.

14. Tindhagur ehf., kr. 652.983.592, 124,2%.

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 525.806.879, 100,00%, Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Aðalvíkur ehf., að fjárhæð kr. 468.038.706, (89,0% af kostnaðaráætlun).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (2203). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Stækkun Tónlistarskóla":

1. Aðalvík ehf., kr. 468.038.706, 89,0%.

2. Alefli ehf., kr. 523.954.439, 99,6%.

3. All Verk ehf., kr 488.353.564, 92,9%.

4. Atlas verktakar ehf., kr. 544.077.873, 103,5%.

5. E. Sigurðsson ehf., 460.140.756, 87,5%.

6. Eykt hf., kr. 561.470.947, 106,8%.

7. Húsameistari ehf., 608.873.560, 115,8%.

8. Íslenskir aðalverktakar hf., 622.837.123, 118,5%.

9. K16 ehf., kr. 529.803.345, 100,8%.

10. Landris ehf., kr. 541.676.392, 103,0%.

11. PK Verk ehf., kr. 593.844.975, 112,9%.

12. Sjammi ehf., kr. 499.997.404, 95,1%.

13. Stéttafélagið ehf., kr. 556.017.584, 105,7%.

14. Tindhagur ehf., kr. 652.983.592, 124,2%.

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 525.806.879, 100,00%, Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda E. Sigurðssonar ehf., að fjárhæð kr. 460.140.756, (87,5% af kostnaðaráætlun).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Gunnar Valur Gíslason vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

3. (2198). fundur

Bæjarráð felur umhverfissviði að bjóða út fyrirhugaða stækkun á tónlistarskólanum að Kirkjulundi 11 í Garðabæ í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt. Um er að ræða u.þ.b. 590 m2 viðbyggingu á einni hæð ásamt 14 m2 kjallara. Gert er ráð fyrir opnu svæði með aðgangi að kennslustofnum, slagverkssal, blásarasal, salerni, kaffistofu og geymslu. Nýja viðbyggingin verður með inngang frá eldri byggingu.