34 (22-26). fundur
34 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.04.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
- Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2604143
01
Mengunarmælingar 2026
Lagt fram.
Málsnúmer 2604141
02
Hreinsunarátak 2026
Hreinsunarátak verður með sama sniði og undanfarin ár og mun fara fram dagana 20.apríl-4.maí.
Málsnúmer 2604142
03
Vorhreinsun lóða 2026
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður með sama sniði og undanfarin tvö ár, þar sem gámum verður komið fyrir á ríflega 30 stöðum í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana. Vorhreinsun lóða fer fram 8. - 26. maí.
Málsnúmer 2311400
04
Hjólreiðastefna Garðabæjar
Lagt fram.
Málsnúmer 2509209
05
Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús
Lögð hefur verið fram umsókn um tímabundið stöðuleyfi til sex mánaða fyrir færanlegu sauna húsi nálægt friðlandi Vífilsstaðavatns. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands.
Umhverfi Vífilsstaðavatns er mikið notað til útvistar og er eftirsóknarverður áningarstaður fyrir bæjarbúa. Vífilsstaðavatn og nágrenni var friðlýst sem friðland árið 2007. Friðlýsingin tekur til Vífilsstaðavatns og svæðis í kring. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnið og lífríki þess, tryggja svæðið sem útivistarsvæði og veita almenningi aðgang að ósnortinni náttúru í þéttbýli.
Lífríki Vífilsstaðavatns er talið einstakt á heimsvísu. Friðlýsingunni er ætlað að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands vatnsins og styrkja verndun tegunda og samfélagsgerðar með sérstæðum stofnum bleikju, urriða, áls og hornsíla í vatninu. Hornsílin í vatninu eru mjög sérstök þar sem þau skortir kviðgadda. Töluvert af andfuglum verpa við vatnið og mófuglar umhverfis það.
Umhverfisnefnd hefur umsjón og eftirlit með svæðinu og vill árétta að tímabundin staðsetning sauna húss við rætur friðlands geti haft neikvæð áhrif á friðlandið. Samkvæmt friðlýsingarskilmálum er óheimilt að trufla dýralíf og raska lífríki í friðlandinu og leggur nefndin ríka áherslu á að gestir friðlandsins fari ekki út í vatnið. Umhverfisnefnd telur mikilvægt að starfsemin raski ekki aðgangi almennings að svæðinu og tryggt verði að starfsemin skilji ekki eftir ummerki.
Þá leggur umhverfisnefnd til að unnt verði að rifta stöðuleyfi komi í ljós að starfsemin standist ekki skilmála friðlýsingar.
Málsnúmer 2602150
06
Reykjanesfólkvangur - friðlýsingarskilmálar
Valkostir vegna endurskoðunar á friðlýsingu Reykjanesfólksvangs kynntir.