Beint í efni

Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Málsnúmer 2604571

Ferill máls

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

11. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir að einbýlishúsi að Steinprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Hluti byggingar nær lítilsháttar út fyrir byggingarreit en að öðru leyti samræmast uppdrættir ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar, hvað ofangreint atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur



Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

8. fundur



Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skyggni byggingar fer út fyrir byggingarreit en í deiliskipulagi Garðahrauns er kveðið á um að hús skulu vera innan byggingarreits og gildir það einnig um skyggni.
Skipulagsstjóri bendir á að skyggni nær talsvert út fyrir byggingarreit að sunnanverðu og kallar því á deiliskipulagsbreytingu.