Beint í efni

Starfsreglur sérskóla í Garðabæ. Innritunar- og útskriftarreglur - Upphaf starfsemi Þorláksskóla.

Málsnúmer 2603111

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

25. (2220). fundur

Lagður fram þjónustusamningur milli Garðabæjar og Jónsvegar ehf. um sjálfstætt rekinn grunnskóla á grundvelli 43.gr. grunnskólalaga nr. 91/2008 og reglugerðar nr. 1150/2018.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Lagðar fram starfsreglur Þorláksskóla sem er sérskóli fyrir nemendur í 1.-10 bekk og er ætlaður einhverfum börnum með verulegar, viðvarandi og fjölþættar stuðningsþarfir.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi starfsreglur fyrir Þorláksskóla. Afgreiðsla bæjarráðs er á grundvelli heimildar í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Lagðar fram reglur um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla á grundvelli 20.gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla nr. 585/2010.

Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um innritun og útskrift nemenda úr Þorláksskóla til síðari umræðu og afgreiðslu í bæjarráði. Afgreiðsla bæjarráðs er á grundvelli heimildar í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Bæjarráð vísar málinu til frekari umfjöllunar í skólanefnd.


Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2216). fundur

Kynnt var staða við undirbúning starfsemi Þorláksskóla, en ráðgert er að skólinn hefji starfsemi í haust.