9. (979). fundur
9. (979). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.06.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
- Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
- Anna Ragnheiður Möller - bæjarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Anna Margrét Steingrímsdóttir - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Almar Guðmundsson, sem er starfsaldursforseti bæjarstjórnar setti fund. Almar bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og óskaði þeim til hamingju með kjör þeirra til bæjarstjórnar. Almar færði fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra stöf í þágu samfélagsins og þakkaði þeim góð störf.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. maí er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2601001
01
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 16/5 ´26.
Bæjarstjórn færir Yfirkjörstjórn Garðabæjar og þeim starfsmönnum sem unnu að framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 2026 þakkir fyrir vel unnin störf.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605431
02
Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.
Tillaga kom fram um Önnu Ragnheiði Möller sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Anna Ragnheiður Möller tók við stjórn fundarins og þakkaði bæjarfulltrúum traustið. Bauð hún bæjarfulltrúa velkomna til starfa og hvatti þá til góðra verka og samstöðu um framgang mikilvægra mála fyrir samfélagið í Garðabæ.
Tillaga kom fram um Jón Þór Eggertsson, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Tillaga kom fram um Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, sem annan varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.
Málsnúmer 2605432
03
Ráðning bæjarstjóra.
Björg Fenger lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Almar Guðmundsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2026-2030.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2.mgr. 54.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
" Garðabæjarlistinn situr hjá við afgreiðslu þessa máls, þar sem við teljum að ráða eigi utanaðkomandi einstakling í starf bæjarstjóra. Okkur finnst eðlilegt að bæjarstjóri sé framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fylgi stefnu bæjarstjórnar, en sitji ekki báðum megin borðsins."
Tillaga um ráðningu bæjarstjóra samþykkt með 9 atkvæðum. KAK og ÞÞ sátu hjá.
Málsnúmer 2605433
04
Kosning nefnda til eins árs.
a) Bæjarráð fimm aðalmenn og tilnefning tveggja áheyrnarfulltrúa.
Bæjarráð fimm aðalmenn:
Aðalmenn: Björg Fenger formaður, Margrét Bjarnadóttir varaformaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Stella Stefánsdóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir.
Áheyrnarfulltrúar: Hlynur Elías Bæringsson og Kjartan Atli Kjartansson.
Varamenn taka sæti í bæjarráði í þeirri röð sem þeir skipa á sama lista og aðalfulltrúar.
Málsnúmer 2605434
05
Kosning nefnda til tveggja ára.
a) Stjórn Sorpu bs. - Aðalmaður og einn til vara.
b) Stjórn Strætó bs. - Aðalmaður og einn til vara.
a. Stjórn Sorpu bs.
Aðalmaður:
Hrannar Bragi Eyjólfsson.
Varamaður:
Margrét Bjarnadóttir.
b. Stjórn Strætó bs.
Aðalmaður:
Birkir Guðlaugsson
Varamaður:
Björg Fenger.
Málsnúmer 2605435
06
Kosning fastanefnda til fjögurra ára.
a) Velferðarráð 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
b) Íþrótta- og tómstundaráð 5 5
c) Yfirkjörstjórn 3 3 2 áheyrnarfulltrúar
d) Leikskólanefnd 5 5
e) Menningar- og safnanefnd 5 5
f) Skipulagsnefnd 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
g) Skólanefnd grunnskóla 5 5 2 áheyrnarfulltrúar
h) Skólanefnd Tónlistarskóa Garðabæjar 5 5
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands 3 3
j) Umhverfisnefnd 5 5
a) Velferðarráð.
Aðalmenn:
Anna R. Möller, formaður, Ýmir Örn Finnbogason, María Guðjónsdóttir, Haukur Þorsteinsson og Inga Amal Hasan.
Varamenn:
Vigdís Gunnarsdóttir, Þorri Geir Rúnarsson, Kristín Einarsdóttir, Sturla Þorsteinsson og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir.
Áheyrnarfulltrúar:
Joanna Marcinkowska og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir.
Varaáheyrnarfulltrúar:
Harpa Grétarsdóttir og Ögmundur Árni Sveinsson.
b) Íþrótta- og tómstundaráð
Aðalmenn:
Birkir Guðlaugsson, formaður, Lára Sif Christiansen, Sigrún Antonsdóttir, Dúi Þór Jónsson og Hlynur Bæringsson.
Varamenn:
Sigurður Sveinn Þórðarson, Lilja Lind Pálsdóttir, Elías Orri Gíslason, Laufey Jóhannsdóttir og Alexander Olsen.
c) Yfirkjörstjórn.
Aðalmenn:
Jóhann Steinar Ingimundarson, Kristín Einarsdóttir og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.
Varamenn: Finnur Magnússon, Hrafnhildur Helgadóttir,
Áheyrnarfulltrúar:
Sigurður Jökull Ólafsson, Ríkey Jóna Eiríksdóttir.
Varaáheyrnarfulltrúar:
d) Leikskólanefnd.
Aðalmenn:
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður, Páll Árnason, Eydís Sigurðardóttir, Inga Rós Reynisdóttir og Rósa Andrésdóttir.
Varamenn:
Viktoría Jensdóttir, Tómas Jónasson, Jóna Brynja Birkisdóttir, Tómas Orri Almarsson og Heiða Mist Kristjánsdóttir.
e) Menningar- og safnanefnd
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Guðrún Arna Sturludóttir, Halldór Snær Lárusson, Egill Trausti Ómarsson og Harpa Grétarsdóttir.
Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Laufey Arnalds Johansen, Dreki Jónsson, Kristmundur Carter og Maru Aleman.
f) Skipulagsnefnd
Aðalmenn:
Björg Fenger, formaður, Ásgeir Ágústsson, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Agla Eir Vilhjálmsdóttir og Einar Þór Einarsson.
Varamenn:
Kjartan Vilhjálmsson, Sigþrúður Ármann, Eymundur Sveinn Einarsson, Jóna Vestfjörð Hannesdóttir og Hlynur Bæringsson.
Áheyrnarfulltrúar:
Guðjón Pétur Lýðsson og Kjartan Atli Kjartansson.
Varaáheyrnarfulltrúar:
Baldur Ó. Svavarsson og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir.
g) Skólanefnd grunnskóla
Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Torfi Geir Símonarson, Harpa Rós Gísladóttir, Guðjón Þór Þorsteinsson og Rakel Margrét Viggósdóttir.
Varamenn:
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Haukur Þór Hauksson, Auður Konn Sigurðardóttir, Pétur Rúnar Heimisson og Rósanna Andrésdóttir.
Áheyrnarfulltrúar:
Finnur Jónsson og Anna Margrét Steingrímsdóttir.
Varaáheyrnarfulltrúar:
Hannes Ingi Geirsson og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir.
h) Skólanefnd Tónlistarskóa Garðabæjar.
Aðalmenn:
Margrét Bjarnadóttir, formaður, Torfi Geir Símonarson, Harpa Rós Gísladóttir, Guðjón Þór Þorsteinsson og Rakel Margrét Viggósdóttir.
Varamenn:
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Haukur Þór Hauksson, Auður Konn Sigurðardóttir, Pétur Rúnar Heimisson og Rósanna Andrésdóttir.
i) Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Halldór Snær Lárusson og Harpa Grétarsdóttir.
Varamenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, Dreki Jónsson og Maru Aleman.
j) Umhverfisnefnd
Aðalmenn:
Jón Þór Eggertsson, formaður, Laufey Jóhannsdóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Eiríkur Þorbjörnsson og Anna Gréta Hafsteinsdóttir.
Varamenn:
Jóhann Jónsson, Sunna Sigurðardóttir, Tómas Freyr Jónsson, María Jústa Pétursdóttir og Einar Sveinbjörnsson.
Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
"Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er varðar breytingu á fastanefndum
Lagt er til að bæjarráði verði falið að undirbúa nauðsynlegar breytingar á reglugerð Tónlistarskóla Garðabæjar nr 830/2013 og samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 með það að markmiði að verkefni skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar færist til skólanefndar Garðabæjar og að skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar verði lögð niður.
Jafnframt er lagt til að bæjarráði verði falið að undirbúa nauðsynlegar breytingar á stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands nr 146/2018 og samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022 með það að markmiði að verkefni stjórnar Hönnunarsafns Íslands færist til menningar- og safnanefndar Garðabæjar og að stjórn Hönnunarsafns Íslands verði lögð niður.
Greinargerð
Tillagan miðar að því að einfalda stjórnskipulag Garðabæjar og samræma meðferð mála innan þeirra fastanefnda sem þegar fara með viðkomandi málaflokka. Með breytingunum munu málefni Tónlistarskóla Garðabæjar falla undir skólanefnd Garðabæjar og málefni Hönnunarsafns Íslands undir menningar- og safnanefnd Garðabæjar."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:
"Tillaga um fjölgun áheyrnarfulltrúa í nefndum
Bæjarfulltrúar minnihlutans leggja til við bæjarstjórn Garðabæjar að samþykktir um stjórn Garðabæjar verði endurskoðaðar. Lagt er til að öll framboð sem hafa kjörinn bæjarfulltrúa en eru án fulltrúa í einhverri fastanefnd Garðabæjar eigi rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt í þá nefnd. Íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og safnanefnd, umhverfisnefnd og leikskólanefnd verði þannig bætt inn í upptalningu á nefndum í 50. gr. núgildandi samþykktar um áheyrnarfulltrúa í nefndum.
Greinargerð
Garðabæ er heimilt skv. 50. gr sveitarstjórnarlaga að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins að framboð sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn en ná ekki kjöri í nefndir geti tilnefnt áheyrnarfulltrúa í fastanefndir.
Eins og staðan er núna eftir sveitarstjórnarkosningar 2026 deila þrír flokkar með sér einu sæti í hverri eftirfarandi fastanefnd í Garðabæ: íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og safnanefnd, umhverfisnefnd og leikskólanefnd. Í þessar fastanefndir er ekki hægt að tilnefna áheyrnarfulltrúa.
Núverandi fyrirkomulag býður upp á að umræður í fastanefndum bæjarins nái ekki til allra bæjarfulltrúa. Þess vegna teljum við, bæjarfulltrúar minnihlutans, afar mikilvægt að breytingarnar sem hér eru lagðar til nái fram að ganga. Með því að hafa áheyrnarfulltrúa í öllum fastanefndum er hægt að tryggja lýðræðislega aðkomu allra framboða að nefndum eins vel og mögulegt er, á þessu kjörtímabili og til framtíðar.
Aðkoma og aðgengi allra flokka að nefndarstarfi er mikilvægt lýðræðismál. Áheyrnarfulltrúar í fastanefndum Garðabæjar eru færri en í öðrum sveitarfélögum. Sem dæmi eru áheyrnarfulltrúar í öllum fastanefndum Kópavogs og Akureyrar.
Fái allir flokkar sinn fulltrúa, nefndarmann eða áheyrnarfulltrúa, í hverja fastanefnd mun það stuðla að upplýstari umræðu og gera fulltrúum sem flestra kjósenda í Garðabæ kleift að uppfylla skyldur sínar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans
Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingar
Anna Margrét Steingrímsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar"
Almar Guðmundsson tók til máls og lagði til að tillögu minnihluta yrði vísað til bæjarráðs.
Anna Margrét Steingrímsdóttir tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu minnihluta bæjarstjórnar til bæjarráðs.
Málsnúmer 2605436
07
Kosning í samstarfsnefndir.
a) Almannavarnanefnd 1 1
b) Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 1 1
c) Heilbrigðisnefnd 1 1
d) Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 2 2
e) Stjórn Hjálparsjóðs Garðasóknar 1 1
f) Stjórn Reykjanesfólkvangs 1 1
g) Stjórn SSH bæjarstjóri 1
h) Stjórn SHS bæjarstjóri 1
i) Öldungaráð 3
j) Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks 3
k) Stefnuráð byggðasamlaganna 3
l) Stefnuráð áfangastaðarins hfbsv. 2 2
a) Almannavarnanefnd
Aðalmenn:
Almar Guðmundsson, Björg Fenger.
Varamenn:
Margrét Bjarnadóttir, Hrannar Bragi Eyjólfsson
b) Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Aðalmaður:
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir.
Varamaður:
Bjarni Th. Bjarnason.
c) Heilbrigðisnefnd
Aðalmaður:
Ingibjörg Hauksdóttir.
Varamaður:
Jóna Sæmundsdóttir.
d) Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
Aðalmenn:
Björg Fenger.
Kjartan Atli Kjartansson.
Varamenn:
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir.
Vilmar Pétursson.
e) Stjórn Hjálparsjóðs Garðasóknar
Aðalmaður
Einar Farestveit.
Varamaður.
Hrannar Bragi Eyjólfsson.
f) Stjórn Reykjanesfólkvangs.
Aðalmaður:
Jón Þór Eggertsson
Varamaður:
Stella Stefánsdóttir.
g) Stjórn SSH.
Aðalmaður:
Almar Guðmundsson.
Varamaður:
Björg Fenger.
h) Stjórn SHS
Aðalmaður:
Almar Guðmundsson.
Varamaður:
Björg Fenger.
i) Öldungaráð
Berglind Víðisdóttir, Eysteinn Haraldsson og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.
j) Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Vordís Einarsdóttir, Sturla Þorsteinsson og Björn Gústav Jónsson.
k) Stefnuráð byggðasamlaganna
Almar Guðmundsson, Björg Fenger og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir
Málsnúmer 2605437
08
Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðalmenn:
1. Almar Guðmundsson
2. Björg Fenger
3. Margrét Bjarnadóttir
4. Hrannar Bragi Eyjólfsson
5. Hlynur Bæringsson
6. xxx
Varamenn:
1. Stella Stefánsdóttir
2. Birkir Guðlaugsson
3. Jón Þór Eggertsson
4. Anna R. Möller
5. Anna Margrét Steingrímsdóttir
6.
Málsnúmer 2605011F
09
Fundargerð bæjarráðs frá 12/5 ´26.
Björg Fenger ræddi 1.tl. grunnskóla, árangur og líðan - kynning, 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga og 4.tl. Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - opnun og starfsemi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. grunnskóla, árangur og líðan - kynning og 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 1.tl. grunnskóla, árangur og líðan - kynning, 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga og 4.tl. Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - opnun og starfsemi.
Fundargerðin sem er 5.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2605027F
10
Fundargerð bæjarráðs frá 19/5 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 og heiðursviðurkenning.
Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2605032F
11
Fundargerð bæjarráðs frá 26/5 ´26.
Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2605002F
12
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 6/5 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Vinnuskóli Garðabæjar 2026, 2.tl. sumarnámskeið barna 2026, 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga og 5.tl. störf ÍTG 2022 til 2026.
Anna Margrét Steingrímsdóttir ræddi 2.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. sumarnámskeið barna 2026 og 5.tl. störf ÍTG 2022 til 2026.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 1.tl. Vinnuskóli Garðabæjar 2026, 5.tl. störf ÍTG 2022 til 2026 og 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. sumaraukaopnun sundlauga.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605017F
13
Fundargerð leikskólanefndar frá 13/5 ´26.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum, 2.tl. skóladagatal leik- og grunnskóla 2027-2028 og 3.tl. störf leikskólanefndar 2022-2026 - samantekt.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605019F
14
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 15/5 ´26.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. bæjarlistamaður og heiðursviðurkenning 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. bæjarlistamaður og heiðursviðurkenning 2026.
Bæjarstjórn óskar bæjarlistamanni og heiðursviðurkenningarhafa til hamingju með verðskuldaðar útnefningar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2604033F
15
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 6/5 ´26.
Anna Margrét Steingrímsdóttir ræddi 2.tl. sérstæk úrræði í grunnskólum.
Almar Guðmundsson ræddi 6.tl. störf skólanefndar 2025-2026 - samantekt.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605008F
16
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskólans frá 8/5 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605015F
17
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/5 ´26.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. rannsókn á lífríki Vífilsstaðavatns, 6.tl. Reykjanesfólkvangur - friðlýsingarskilmálar, 7.tl. starfsskýrslu Skógræktarfélags Garðabæjar 2025-2026 og fundargerðina.
Jón Þór Eggertsson ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605001F
18
Fundargerð velferðarráðs frá 8/5 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. aðgerðaráætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026 og fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2605186
19
Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu
Lögð fram til staðfestingar Viljayfirlýsing Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins um mótun og uppbyggingu sérskólaúrræða fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.
Málsnúmer 2602330
20
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 8/5 ´26.
Björg Fenger ræddi fundargerðina.
Lögð fram.
Málsnúmer 2601508
21
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17/4 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.