Beint í efni

Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.

Málsnúmer 2605431

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (979). fundur

Tillaga kom fram um Önnu Ragnheiði Möller sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.

Anna Ragnheiður Möller tók við stjórn fundarins og þakkaði bæjarfulltrúum traustið. Bauð hún bæjarfulltrúa velkomna til starfa og hvatti þá til góðra verka og samstöðu um framgang mikilvægra mála fyrir samfélagið í Garðabæ.

Tillaga kom fram um Jón Þór Eggertsson, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.

Tillaga kom fram um Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, sem annan varaforseta. Tillagan samþykkt með ellefu samhljóða atkvæðum.