Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (979). fundur
Lögð fram til staðfestingar Viljayfirlýsing Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins um mótun og uppbyggingu sérskólaúrræða fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. (2214). fundur
Lögð fram viljayfirlýsing Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins, vegna vinnu að mótun og uppbyggingu sérskólaúrræða fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta samþykki Garðabæjar á fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.