Beint í efni

Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605432

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (980). fundur

Björg Fenger tók til máls.

Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Minnihluti bæjarstjórnar, Framsókn, Samfylkingin og Garðabæjarlistinn vilja vekja athygli á starfskjörum bæjarstjóra.
Frá síðasta ráðningarsamningi árið 2022 hafa föst laun bæjarstjóra hækkað um rúmlega 500.000 kr á mánuði og heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna launa, bifreiðastyrks og lífeyrissjóðsframlags hækkað um nærri 580 þúsund krónur á mánuði. Sú hækkun skýrist vitaskuld af því að laun bæjarstjóra eru tengd launavísitölu, fyrirkomulagi sem þorri launafólks nýtur ekki og þarf þess í stað að semja um í kjaraviðræðum.
Minnihlutinn gerir sér grein fyrir mikilvægi starfsins og þeirri ábyrgð sem því fylgir. Hins vegar teljum við eðlilegt að vekja athygli á þessum kjörum í ljósi þess að undanfarin misseri hefur verið kallað eftir auknu aðhaldi í opinberum fjármálum til að styðja við baráttuna gegn verðbólgu og til að hagræða í rekstri hins opinbera.
Minnihlutinn telur mikilvægt að sömu sjónarmið um aðhald, hófsemi og ábyrga meðferð almannafjár gildi einnig þegar kemur að kjörum æðstu stjórnenda sveitarfélagsins. Best væri ef þeir leiddu veginn með góðu fordæmi. Eðlilegra væri að samningurinn fæli í sér reglubundið endurskoðunarákvæði í stað sjálfvirkrar vísitölutengingar launa. Slíkt hefði skapað aukið svigrúm til að meta kjörin í ljósi aðstæðna hverju sinni og samræmst betur þeim kröfum um aðhald sem gerðar eru annars staðar í opinberum rekstri."

Björg Fenger tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins benda á að ráðningarkjör bæjarstjóra eru ákveðin af bæjarstjórn á grundvelli ábyrgðar, umfangs og eðlis starfsins.
Bæjarstjóri Garðabæjar ber ábyrgð á daglegri stjórnun sveitarfélags sem sinnir fjölbreyttri þjónustu við þúsundir íbúa, stýrir umfangsmiklum rekstri og fjárfestingum og veitir yfir hundruðum starfsmanna forystu.
Mikilvægt er að um ráðningarkjör bæjarstjóra ríki skýrleiki og gagnsæi. Sá samningur sem hér liggur fyrir uppfyllir þau markmið og byggir að öðru leyti á þeim grunni sem bæjarstjórn hefur áður samþykkt.
Sú framkvæmd hefur almennt tíðkast hjá stærri sveitarfélögum landsins að grunnlaun bæjarstjóra séu tengd launavísitölu. Slík tenging tryggir að launakjör fylgi almennri þróun á vinnumarkaði með gagnsæjum og málefnalegum hætti í stað þess að vera háð reglulegum pólitískum ákvörðunum. Fyrirkomulagið stuðlar að fyrirsjáanleika, stöðugleika og faglegri umgjörð um ráðningarkjör æðsta stjórnanda sveitarfélagsins."

Hlynur Bæringsson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG,BF,MB,HBE,SS,JÞE,ARM,ÝÖF) fyrirliggjandi ráðningarsamning við Almar Guðmundsson, bæjarstjóra Garðabæjar. KAK, ÞÞ, HEB sátu hjá.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2216). fundur

Lagður fram ráðningarsamningur bæjarstjóra.

Samningurinn verður lagður fram í bæjarstjórn til staðfestingar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (979). fundur

Björg Fenger lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Almar Guðmundsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2026-2030.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2.mgr. 54.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

" Garðabæjarlistinn situr hjá við afgreiðslu þessa máls, þar sem við teljum að ráða eigi utanaðkomandi einstakling í starf bæjarstjóra. Okkur finnst eðlilegt að bæjarstjóri sé framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fylgi stefnu bæjarstjórnar, en sitji ekki báðum megin borðsins."

Tillaga um ráðningu bæjarstjóra samþykkt með 9 atkvæðum. KAK og ÞÞ sátu hjá.