Beint í efni

3. fundur

07.10.2026
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

3. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

07.10.2026

Kl. 08:15 - 10:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Haukur Þór Hauksson - varamaður
  • Rósanna Andrésdóttir - varamaður
  • Finnur Jónsson - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Margrét Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Hannes Ingi Geirsson - fulltrúi kennara
  • Guðbjörg Birna Björnsdóttir - fulltrúi foreldra

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2609622

01

Starfsáætlanir grunnskóla 2026-2027

Starfsáætlanir grunnskóla voru lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfullar og vel unnar starfsáætlanir.

Málsnúmer 2606674

02

Innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.

Skólanefnd lýsir áhyggjum af því að nemendur hafi ekki fengið inngöngu í þá framhaldsskóla sem þeir sóttu um og að sumum hafi verið úthlutað skólavist fjarri lögheimili sínu. Nefndin leggur áherslu á að þegar ekki er unnt að verða við óskum nemenda um skóla verði þeim úthlutað skólavist þar sem samgöngur eru greiðar og aðgengi gott. Mikilvægt er að skólavist taki mið af bæði búsetu og valkostum nemenda, enda getur langur og erfiður ferðatími haft neikvæð áhrif á líðan, þátttöku, námsframvindu og aukið líkur á brotthvarfi úr námi.

Málsnúmer 2610036

03

Menntadagur leik- og grunnskóla 2026

Rætt var um Menntadag Garðabæjar 2026 sem haldinn verður þann 30. október nk. Þar verða m.a. kynnt þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar á árunum 2023 - 2025.

Málsnúmer 2610055

04

Íbúafundur um skólamál

Lagt var fram erindi um íbúafund um skólamál sem fram fer í Miðgarði þann 7. október nk. kl. 19:30.

Skólanefnd hvetur íbúa, foreldra, starfsfólk skóla og aðra áhugasama til þátttöku. Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir samtal um skólastarf í sveitarfélaginu, miðla upplýsingum og gefa íbúum kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Skólanefnd telur mikilvægt að efla umræðu og samráð um þróun skólamála í sveitarfélaginu.

Málsnúmer 2608434

05

Viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar

Skólanefnd ræddi viðmið um skólasókn. Lögð var áhersla á að greina ástæður fjarveru nemenda og finna leiðir til að styðja við aukna þátttöku þeirra í skólastarfi.