Viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar
Málsnúmer 2608434
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
3. fundur
Skólanefnd ræddi viðmið um skólasókn. Lögð var áhersla á að greina ástæður fjarveru nemenda og finna leiðir til að styðja við aukna þátttöku þeirra í skólastarfi.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
2. fundur
Grunnskólafulltrúi kynnti viðmið Garðabæjar um skólasókn og viðbrögð við fjarveru. Farið var yfir mikilvægi snemmtæks stuðnings, skýra verkferla vegna fjarveru með tengslamiðaðri nálgun þar sem áhersla er lögð á traust samstarf nemenda, heimila og skóla til að styðja við skólasókn.