Beint í efni

2. fundur

02.09.2026
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

2. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

02.09.2026

Kl. 08:15 - 10:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Guðjón Þór Þorsteinsson - aðalmaður
  • Rakel Margrét Viggósdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
  • Anna Margrét Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Hannes Ingi Geirsson - fulltrúi kennara
  • Guðbjörg Birna Björnsdóttir - fulltrúi foreldra

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
  • Laufey Ólafsdóttir - fulltrúi skólastjóra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2608481

01

Starfsemi Tónlistarskóla Garðabæjar 2026-2027

Laufey Ólafsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar fór yfir upphaf skólaársins og starfið á haustönn.

Málsnúmer 2607098

02

Bókun frá 630. fundi stjórnar SSH - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 lögð fram til kynningar. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins kynnir og svarar fyrirspurnum fundarmanna.

Skólanefnd fagnar aðgerðaráætluninni og óskar eftir að fá með reglubundnum hætti upplýsingar um stöðu innleiðingar farsældarlaga í Garðabæ. Óskað er eftir kynningu á stöðunni frá verkefnastjóra innleiðingar farsældar á næstu mánuðum.

Málsnúmer 2608432

03

Ársskýrslur grunnskóla 2025-2026

Lagðar voru fram ársskýrslur grunnskóla skólaársins 2025-2026. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir faglegar og vel unnar ársskýrslur. Þær bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu. Skólanefnd telur að skoða mætti frekari samræmingar. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og frístundasvið til frekari skoðunar með skólastjórnendum.

Málsnúmer 2608433

04

Skólabyrjun 2026-2027. Fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar

Grunnskólafulltrúi fór yfir skólabyrjun 2026-2027. Við upphaf skólaársins hófu 2658 nemendur nám í grunnskólum í Garðabæ. 336 nemendur hófu nám í 1. bekk og 246 nemendur í 10. bekk sem munu ljúka grunnskólagöngu vorið 2027. Farið var yfir helstu áherslur í skólastarfinu á skólaárinu.

Málsnúmer 2405508

05

Þrepaskipt skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar

Grunnskólafulltrúi kynnti þrepaskipta skólaþjónustu í leik- og grunnskólum, innleiðing hófst í janúar 2026. Þrepaskipt skólaþjónusta er heildstætt skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða í skólum þar sem þverfagleg teymi kennara og fagfólks skipuleggja stuðningsúrræði fyrir einstaka nemendur.

Málsnúmer 2608434

06

Viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar

Grunnskólafulltrúi kynnti viðmið Garðabæjar um skólasókn og viðbrögð við fjarveru. Farið var yfir mikilvægi snemmtæks stuðnings, skýra verkferla vegna fjarveru með tengslamiðaðri nálgun þar sem áhersla er lögð á traust samstarf nemenda, heimila og skóla til að styðja við skólasókn.

Málsnúmer 2608439

07

Fundir skólanefndar 2026-2027 helstu áherslur.

Farið var yfir störf og hlutverk skólanefndar. Formaður fór yfir helstu áherslur næsta skólaárs. Skólanefnd felur fræðslu- og frístundasviði að taka saman upplýsingar um hvernig komið er til móts við þarfir bráðgerra nemenda í grunnskólum Garðabæjar.