Beint í efni

7. (1822). fundur

20.02.2018
Bæjarráð Garðabæjar

7. (1822). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

20.02.2018

Kl. 08:00 - 08:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1802175

01

Tillögur að framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins til ársins 2030.

Á fund bæjarráðs mætti Björg Fenger, fulltrúi Garðabæjar í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og gerði grein fyrir tillögum að stefnumótun um uppbyggingu og framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins til 2030.

Málsnúmer 1802128

02

Bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis varðandi raforkuflutninga, dags. 08.02.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu tækni- og umhverfissviðs

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1802155

03

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga (réttur barna til dvalarleyfis), 34. mál., dags 12.02.18.

Lagt fram.

Málsnúmer 1802192

04

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, 35. mál., dags. 14.02.18.

Lagt fram.

Málsnúmer 1802156

05

Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um útlendinga (fylgdarlaus börn), 42. mál., dags. 12.02.18.

Lagt fram.

Málsnúmer 1802196

06

Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um ættleiðingar, 128 mál., dags. 13.02.18.

Lagt fram.

Málsnúmer 1802193

07

Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um íslenskan ríkisborgararétt og barnalög (ríkisfangsleysi), 133. mál., dags. 13.02.18

Lagt fram.

Málsnúmer 1802210

08

Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir, 52. mál., dags. 15.02.18.

Lagt fram.

Málsnúmer 1802184

10

Ábendingar íbúa um atriði til lagfæringar í Sundlaug Álftaness, dags. 14.02.18.

Bæjarráð þakkar fyrir ábendingar sundlaugagesta um atriði til lagfæringar í Sundlaug Álftaness.

Íþróttafulltrúi hefur farið yfir ábendingarnar og liggja fyrir athugasemdir hans um viðbrögð við einstaka liðum.

Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1802204

11

Samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðslumiðstöð í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir að fresta ákvörðun um skipun fulltrúa í starfshópinn til næsta fundar.

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir starfshópinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1802206

12

Drög að samningi um leigu á húsnæði fyrir starfsemi þjónustumiðstöðvar að Lyngási 18.

Bæjarráð samþykkir samning um leigu á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð sem mun m.a. bæta aðstöðu starfsmanna með stækkun á mat- og kaffistofu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801249

13

Aðgerðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnti drög að minnisblaði um helstu þætti í aðgerðum til að efla starfsumhverfi leikskóla.

Fylgiskjöl