Hafnarfjarðarvegur, stofnbraut, deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarfjarðarveg samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Að kveðið verði á um það í skilmálum að útfærð verði hraðatakmarkandi lausn til að draga úr hraða þeirra ökutækja sem beygja inn og út úr Lyngási.
Að hljóðvegg við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss að norðanverðu verði breytt á uppdrætti til að bæta sýn fyrir hjólreiðamenn.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarfjarðarveg samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Að kveðið verði á um það í skilmálum að útfærð verði hraðatakmarkandi lausn til að draga ú hraða þeirra ökutækja sem beygja inn og út úr Lyngási.
Hljóðvegg við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss að norðanverðu verði breytt á uppdrætti til að bæta sýn fyrir hjólreiðamenn.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagðar fram að lokinni auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðalagfæringum á stofnbrautinni ásamt tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir varanlegu útfærslum á umferðarkerfi. Lagðar fram tillögur að breytingum á deiliskipulagi Hörgatúns 2, deiliskipulagi Ásgarðs, deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis,deiliskipulagi Hraunsholts eystra og deiliskipulagi Ása og Grunda sem tengjast allar endurbótum umferðarkerfisins, bæði varanlegum og til bráðabirgða.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Lögð fram greinargerð með tillögum að svörum við athugasemdum.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar í kjölfar athugasemda sem borist hafa.
-Að kveðið verði á um það í skilmálum að útfærð verði hraðatakmarkandi lausn til að draga ú hraða þeirra ökutækja sem beygja inn og út úr Lyngási.
-Hljóðvegg við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss að norðanverðu verði breytt á uppdrætti til að bæta sýn fyrir hjólreiðamenn.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að deilskipulagi stofnbrautarinnar Hafnarfjarðarvegur að lokini auglýsingu.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
3. (843). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi hluta Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (1868). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi hluta Hafnarfjarðarvegar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá gatnamótum við Vífilsstaðaveg og að gatnamótum við Lyngás/Lækjarfit. Tillagan gerir ráð fyrir umferðarskipulagi í samræmi við tillögur að bráðabirgðaendurbótum Hafnarfjarðarvegar sem unnar hafa verið af Vegagerðinni í samráði við Garðabæ. Einnig lagðar fram tillögur að breytingum 5 deiliskipulagsáætlana sem ráðist er í vegna tillagna að endurbótunum(Sjá fundarliði 11-15). Tillögurnar hafa verið forkynntar og haldinn var íbúafundur í Flataskóla þann 9. janúar sem var vel sóttur. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar og alls bárust 10 erindi sem hafa verið send til ráðgjafa og Vegagerðarinnar til úrvinnslu. Á fundi skipulagsstjóra og annarra starfsmanna tækni-og umhverfissviðs með Skipulagsstofnun þann 16. janúar sl. þá mælti stofnunin með því að unnið verði deiliskipulag fyrir Hafnarfjarðarveg sem gerði ráð fyrir ofangreindum tillögum að bráðabirgðaendurbótum jafnvel þó að hún væri ekki samræmi við markmið aðalskipulags um mislæg gatnamót og vegstokk. Því er nú lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðaendurbótunum. Þar sem að tillagan er að öllu leyti í samræmi við þær tillögur að endurbótum sem forkynntar hafa verið þá lítur skipulagsnefnd svo á að deiliskipulagstillaga þessi hafi hlotið forkynningu sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um leið er lögð fram tillaga þess efnis að hafinn verði undirbúningur aðalskipulagsbreytingar sem verði sett fram sem rammahluti aðalskipulags og nái til Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss. Sú aðalskipulagsbreyting verði til grundvallar þegar deiliskipulag Hafnarfjarðarvegar verður fullunnið í samræmi við aðalskipulag.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.