10. fundur
10. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Flataskóla
15.05.2019
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
Starfsmenn
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Hilmar Þór Sigurjónsson - fulltrúi kennara
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Í upphafi fundar óskaði formaður skólanefndar grunnskóla, Sigríður Hulda Jónsdóttir, eftir að bæta einum lið við dagskrá fundarins er varðar beiðni Garðaskóla um tilfærslu á skipulagsdegi. Var sú beiðni samþykkt samhljóða og málið 6 liður á dagská fundarins.
Dagskrá
01
Snjallvæðing Garðabæjar
Skólanefnd fagnar áhugaverðu verkefni og leggur áherslu á sterka tengingu við skólasamfélagið.
02
Aðgerðir stjórnvalda í menntamálum-útfærsla starfsnámsárs og námsstyrkir
Lagt fram til kynningar og umræðu.
03
Frumvarp til lag um menntun, hæfni og ráðningu kennara og stjórnenda
Lagt fram til kynningar og umræðu
04
Ósk um breytingu á tímasetningum er varða skólabyrjun
Rætt um spurningar til foreldra á unglingstigi varðandi upphaf skóladags og möguleika á að spyrja einnig nemendur.
05
Skólasókn - reglur
Skólanefnd fagnar þessum tillögum og styður þá hugmynd stjórnenda að samræma verkferla er varða skólasókn í grunnskólum Garðabæjar.
06
Beiðni Garðaskóla um tilfrærslu á skipulagsdögum að sumri í skóladagatali 2019-2020
Skólanefnd samþykkir beiðni um tilfærslu á starfsdögum að sumri enda kemur sú breyting ekki til með að hafa nein áhrif á það sem snýr að nemendum skólans.
07
Kynning og samtal við stjórnendur
Skólanefnd þakkar áhugaverða kynningu og fagnar því að fá að kynna sér skólastarfið með þessum hætti.