13. (853). fundur
13. (853). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
19.09.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. september 2019 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1909008F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/9 ´19.
Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á spildu úr landi Búðarflatar.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1909018F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/9 ´19.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1909010F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/9 ´19.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes og 5. tl., endurskoðun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes og 5. tl., endurskoðun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Ingvar Arnarson ræddi 1. tl., endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes, 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar og 3. tl., vaktaplan fyrir Mýrina.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes og 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi 2. tl., viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar.
Björg Fenger, ræddi 7. tl., samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1909005F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 11/9 ´19.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., dvalargjöld í leikskólum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., dvalargjöld í leikskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., dvalargjöld í leikskólum.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., dvalargjöld í leikskólum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1909003F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 6/9 ´19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., minjagarð við Hofsstaði, 6. tl., tónlistarveislu í skammdeginu og 8. tl., beiðni Verðanda leikfélags nemenda í Fjölbrautaskóla Garðabæjar um styrk vegna leiksýningar
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1909014F
06
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 12/9 19.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk og vakti athygli á minnisblaði sem fram kemur í fundargerðinni að lagt hafi verið fram.
Björg Fenger, ræddi að nýju 3. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1908036F
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/9 ´19.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skólabyrjun og fjölda nemenda 2019-2020, 4. tl., menntadag í Garðabæ, 7. tl., skólaakstur í Garðabæ og 8. tl., áskorun Samtaka grænkera um að bregðast við hamfarahlýnum með því að draga úr neyslu dýraafurða.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., áskorun Samtaka grænkera um að bregðast við hamfarahlýnum með því að draga úr neyslu dýraafurða og 3. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., ytra mat Sjálandsskóla.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi .3. tl., ytra mat Sjálandsskóla.
Gunnar Einarsson kom til fundarins kl. 17:40 og vék þá Guðfinnur Sigurvinsson af fundi.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi að nýju 3. tl., ytra mat Sjálandsskóla.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., ytra mat Sjálandsskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1909007F
08
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/9 ´19.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., mengunarmælingar, 4. tl., fjölgun máva, 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., mengunarmælingar.
Björg Fenger, ræddi 6. tl., hjóla og gönguteljarara og vakti athygli á hjólaviðgerðarstöndum sem settir hafa verið upp á þremur stöðum í bænum.
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., fjölgun máva og 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., fjölgun máva og 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., hjóla og gönguteljarara.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1908028F
09
Fundargerð öldungaráðs frá 28/8 ´19.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., aðgerðaráætlun samkvæmt stefnu í málefnum eldri borgara, 3. tl. forvarnarviku í Garðabæ 2019 og 4. tl., tillögu um að gerð verði könnun meðal eldri borgara varðandi nýtingu á þeirri heilsurækt sem í boði er í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1901375
10
Fundargerð stórnar SSH frá 2/9 ´19.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1901198
11
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 2/9 ´19.
Jón Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., endurskoðun á fjárfestingar- og fjármögnunaráætlun, 4. tl., bréf Vestmannaeyjabæjar varðandi móttöku úrgangs.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., endurskoðun á fjárfestingar- og fjármögnunaráætlun og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Bæjarstjórn Garðabæjar leggur áherslu á að fram fari hið fyrsta úttekt óháðs aðila á starfsemi og verkferlum Sorpu bs. Jafnframt að teknar verði upp viðræður um fyrirkomulag á rekstri og stjórnkerfi byggðasamlaganna allra sem eru í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Í þeim viðræðum verði sérstaklega horft til úttektar sem gerð var árið 2016 á stjórnkerfi byggðasamlaganna og þeirra tillagna sem þá voru fram settar".
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., bréf Vestmannaeyjabæjar varðandi móttöku úrgangs.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1907106
12
Fundargerðir eigendafunda Sorpu bs. frá 26/8 og 2/9 ´19.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 1904165
13
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 2/9 ´19.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1810055
14
Tillaga um innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir innkaupa- og úrgangstefnu Garðabæjar en markmið hennar er að fylgja eftir umhverfisstefnu Garðabæjar þar sem stefnt er að því að draga úr myndun úrgangs sem og auka flokkun til endurnýtingar og endurvinnslu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls og hrósaði umhverfisnefndinni fyrir vel unnið verk.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Málsnúmer 1909043
15
Tillaga um að veita einfalda ábyrgð í tilefni af lántöku Sorpu bs. vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar.
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir erindi Sorpu bs. um að Garðabær veiti einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veitingu umboðs til að undirrita lánssamning. Jafnframt fylgir að taka að sér skuldbindingar sem fram koma í lánssamningi vegna láns Sorpu bs. sem tekið er hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánssamningur liggur frammi á fundinum. Gunnar lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 990.000.000,- til 15 ára. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að fjármagna viðbótarkostnað við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, ásamt nauðsynlegum tækjabúnaði sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Garðabæjar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Garðabær selji eignarhlut í SORPU bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur bæjarstjórn Garðabæjar sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirarandi bókun.
"Það sem fram hefur komið síðustu vikur í rekstri Sorpu bs. er engan veginn í samræmi við þær yfirlýsingar um ábyrga og agaða fjármálastjórn meirihlutans í Garðabæ ekkert frekar en það sem fram hefur komið sé í takti við stefnu Garðabæjarlistans um gagnsæja stjórnsýslu eða fagleg vinnubrögð og því óásættanlegt að una við óbreytt ástand.
Undirrituð leggur til að neyðarstjórn verði skipuð undir stjórn sérfræðinga á sviðið fjármála og mannvirkjagerðar. Meginhlutverk stjórnar verði að yfirfara þær áætlanir sem til eru um byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og öllum þeim framkvæmdum sem þeirri starfsemi fylgja. Einnig að komið verði með raunhæfar fjármögnunar ? og rekstraráætlanir til langstíma, fylgt verði eftir framvindu verkefnisins og lagt fyrir stjórn Sorpu bs. SSH og borgarstjórn og bæjarstjórnir með reglubundum hætti."
Jafnframt tel ég eðlilegt að framkvæmdastjóri Sorpu víki tímabundið úr starfi á meðan á rannsókn stendur yfir vegna framúrkeyrslu við framkvæmd gas- og jarðgerðarstöðvarinnar sem og að endurskoða þurfi fyrirkomulag byggðasamlaga í heild."
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með atkvæðum allra bæjarfulltrúa að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 990.000.000 enda verði samhljóða tillaga samþykkt í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Málsnúmer 1909244
16
Tillaga Garðabæjarlistans um að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut og ávexti/grænmeti í nestistíma í grunnskólum bæjarins.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana og að ávextir og grænmeti verði í boði í nestistíma fyrir grunnskólabörn í Garðabæ.
Greinagerð.
Flestir þekkja mikilvægi þess að borða morgunmat. Með því að tryggja aðgengi allra barna að morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana, stuðlar Garðabær sem sveitarfélag að hollri og næringaríkri næringu í byrjun dags hjá börnum og ungmennum sem er í takti við innleiðingu samnings um heilsueflandi samfélag. Samningur sem var undirritaður fyrir margt löngu. Eins er mikilvægt að börn fái holla næringu yfir daginn og því gott að bjóða upp á ávexti og grænmeti í nestistíma.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til skólanefndar og leikskólanefndar.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til skólanefndar og leikskólanefndar.
Málsnúmer 1908154
17
Tillaga um að tekjutengja afslætti af leikskólagjöldum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða afslætti á dvalargjöldum leikskóla og horft verði til tekjutengingar í öllum tilvikum. Áfram er gert ráð fyrir systkinaafslætti.
Greinargerð.
Mikilvægt er að koma á móts við tekjulága foreldra í öllum tilfellum og tryggja hagsmuni barnsins sem best.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Garðabæjarlistinn fagnar því að sjálfstæðismenn í Garðabæ sjái tilefni til þess að skoða tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum og viðurkenni nú loksins þá þörf að mæta tekjulægstu barnafjölskyldunum í bænum."
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu og vísar henni til frekar úrvinnslu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.