Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut og ávexti/grænmeti í nestistíma í grunnskólum bæjarins.

Málsnúmer 1909244

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

10. fundur

Lagt fram til umfjöllunar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

13. fundur

Skóladeild falið að skoða málið í samvinnu við Skólamat og skólastjórnendur í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

13. (853). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana og að ávextir og grænmeti verði í boði í nestistíma fyrir grunnskólabörn í Garðabæ.

Greinagerð.
Flestir þekkja mikilvægi þess að borða morgunmat. Með því að tryggja aðgengi allra barna að morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana, stuðlar Garðabær sem sveitarfélag að hollri og næringaríkri næringu í byrjun dags hjá börnum og ungmennum sem er í takti við innleiðingu samnings um heilsueflandi samfélag. Samningur sem var undirritaður fyrir margt löngu. Eins er mikilvægt að börn fái holla næringu yfir daginn og því gott að bjóða upp á ávexti og grænmeti í nestistíma.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til skólanefndar og leikskólanefndar.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til skólanefndar og leikskólanefndar.