Tillaga um að tekjutengja afslætti af leikskólagjöldum.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (853). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða afslætti á dvalargjöldum leikskóla og horft verði til tekjutengingar í öllum tilvikum. Áfram er gert ráð fyrir systkinaafslætti.
Greinargerð.
Mikilvægt er að koma á móts við tekjulága foreldra í öllum tilfellum og tryggja hagsmuni barnsins sem best.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Garðabæjarlistinn fagnar því að sjálfstæðismenn í Garðabæ sjái tilefni til þess að skoða tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum og viðurkenni nú loksins þá þörf að mæta tekjulægstu barnafjölskyldunum í bænum."
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu og vísar henni til frekar úrvinnslu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Umfjöllun um dvalargjöld í leikskólum. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að endurskoðaðir verði afslættir á dvalargjöldum í leikskólum og horft verði til tekjutengingar í öllum tilvikum.