Tillaga um að veita einfalda ábyrgð í tilefni af lántöku Sorpu bs. vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (853). fundur
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir erindi Sorpu bs. um að Garðabær veiti einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veitingu umboðs til að undirrita lánssamning. Jafnframt fylgir að taka að sér skuldbindingar sem fram koma í lánssamningi vegna láns Sorpu bs. sem tekið er hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánssamningur liggur frammi á fundinum. Gunnar lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 990.000.000,- til 15 ára. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að fjármagna viðbótarkostnað við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, ásamt nauðsynlegum tækjabúnaði sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Garðabæjar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Garðabær selji eignarhlut í SORPU bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur bæjarstjórn Garðabæjar sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirarandi bókun.
"Það sem fram hefur komið síðustu vikur í rekstri Sorpu bs. er engan veginn í samræmi við þær yfirlýsingar um ábyrga og agaða fjármálastjórn meirihlutans í Garðabæ ekkert frekar en það sem fram hefur komið sé í takti við stefnu Garðabæjarlistans um gagnsæja stjórnsýslu eða fagleg vinnubrögð og því óásættanlegt að una við óbreytt ástand.
Undirrituð leggur til að neyðarstjórn verði skipuð undir stjórn sérfræðinga á sviðið fjármála og mannvirkjagerðar. Meginhlutverk stjórnar verði að yfirfara þær áætlanir sem til eru um byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og öllum þeim framkvæmdum sem þeirri starfsemi fylgja. Einnig að komið verði með raunhæfar fjármögnunar ? og rekstraráætlanir til langstíma, fylgt verði eftir framvindu verkefnisins og lagt fyrir stjórn Sorpu bs. SSH og borgarstjórn og bæjarstjórnir með reglubundum hætti."
Jafnframt tel ég eðlilegt að framkvæmdastjóri Sorpu víki tímabundið úr starfi á meðan á rannsókn stendur yfir vegna framúrkeyrslu við framkvæmd gas- og jarðgerðarstöðvarinnar sem og að endurskoða þurfi fyrirkomulag byggðasamlaga í heild."
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með atkvæðum allra bæjarfulltrúa að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 990.000.000 enda verði samhljóða tillaga samþykkt í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
34. (1895). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Birkir Jón Jónsson, formaður stjórnar Sorpu bs. og Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri. Gerðu þeir grein fyrir erindi stjórnar byggðasamlagsins varðandi breytingar á fjárfestinga- og fjármögnunaráætlun og samþykkt stjórnarinnar um lántöku að fjárhæð kr. 990.000.000 hjá Lánsjóði sveitarfélaga vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar og kaupa á tækjabúnaði.
Í bréfinu er farið fram á formlega afgreiðslu á einfaldri ábyrgð Garðabæjar vegna samþykktar stjórnar Sorpu bs. á lántöku.
Bæjarráð vísar erindi um einfalda ábyrgð vegna lántöku til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúarnir Harpa Þorsteinsdóttir og Björg Fenger sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1894). fundur
Í bréfinu er gerð grein fyrir tillögu að lántöku að fjárhæð 990 mkr vegna breytinga á fjárfestingar- og fjármögnunaráætlun í tengslum við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar og kaupa á tækjabúnaði.
Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir málinu.
Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu og afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs.